Skipt um skoðun!

Forráðamenn Liverpool Football Club skiptu um skoðun! Stuðningsmenn Liverpool höfðu sín áhrif með þau sinnaskipti sem urðu varðandi fyrirhugaða hækkun á miðaverði á Anfield Road.

Liverpool Football Club gaf það út fyrir nokkrum vikum að að félagið ætlaði að hækka miðaverð um þrjú til fimm prósent á hverju ári næstu þrjú keppnistímabil í takt við verðbólgu. Stuðningsmannasamtök Liverpool voru allt annað en sátt við þessa fyrirætlun og skipulögðu mótmæli. Mest voru mótmælin á leik Liverpool og Crystal Palace á Anfield. Á ákveðnum tímapunkti í leiknum lyftu áhorfendur gulum spjöldum á loft þar sem fyrhugaðri miðaverðshækkun var mótmælt. Má segja að stúkurnar á Anfield hafi orðið algular!
Mótmælin skiluðu árangri því félagið hefur fallið frá þeirri fyrirætlun að hækka miðaverð næstu þrjú árin. Þó helst þriggja prósenta hækkun fyrir næsta tímabil en svo verður verð á miðum fryst. Það verður að segjast að bæði stuðningsmenn Liverpool og forráðamenn Liverpool eigi hrós skilið. Stuðningsmennirnir fyrir að mótmæla með silgum rökum og forráðamennirnir fyrir að taka tillit til stuðningsmannanna.
-
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram! -
| Sf. Gutt
Illur grunur staðfestur

