| Sf. Gutt

Af spjöldum sögunnar!

 

Í dag eru 40 ár liðin frá því Liverpool varð Englandsmeistari í 16. sinn. Liverpool mætti Chelsea á Stamford Bridge í síðustu umferð deildarinnar. 

Sigur myndi tryggja Liverpool Englandsmeistaratitilinn hvað svo sem önnur lið gerðu. Liverpool og Everton höfðu verið í miklu kapphlaupi um titilinn. West Ham United var líka með í baráttunni. En verkefnið var ekki auðvelt því Liverpool hafði ekki unnið deildarleik á Stamford Bridge í 12 ár. 

Svo er sagt frá leiknum í grein um Kenny Dalglish í greinaflokknum Goðsagnir hér á Liverpool.is. ,,Þegar komið var að síðasta leik tímabilsins gegn Chelsea á Stamford Bridge var Liverpool með 85 stig gegn 83 stigum Everton. Á 23. mínútu réðust úrslit leiksins, Beglin átti frábæra sendingu á hvern annan en Kenny Dalglish og hann tók við boltanum og skaut honum glæsilega í fjærhornið." Á myndinni að ofan fagnar Kenny markinu sínu. 

Liverpool varði sinn hlut og þegar flautað var til leiksloka var ljóst að Rauði herinn hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í 16. sinn. Alls voru  43.900 áhorfendur á Stamford Bridge. Talið var að fleiri en 10.000 af þeim hafi fylgt Liverpool að málum. 

Liverpool hafði lengi vel á leiktíðinni verið all nokkuð frá toppsætinu. En frá því í lok febrúar dró Liverpool jafnt og þétt á efstu liðin. Lokaspretturinn í deildinni var æsispennandi. Liverpool komst upp fyrir Everton í næst síðustu umferð og hafði allt í hendi sér þegar komið var að leiknum við Chelsea. 

Þessi titilsigur var sögulegur fyrir þær sakir að Kenny Dalglish varð fyrsti maðurinn í sögu ensku knattspyrnunnar til að leiða lið til meistaratitils sem spilandi framkvæmdastjóri. Þetta var fyrsta keppnistímabilið sem hann var framkvæmdastjóri Liverpool. 

Hér er allt um leikinn á https://www.lfchistory.net/.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan