Giorgi Mamardashvili enn meiddur

Segja má að Giorgi Mamardashvili hafi verið sérstaklega óheppinn að meiðast í síðasta mánuði í útileiknum á móti Everton. Hann var búinn að spila vel í leiknum þegar hann meiddist eftir árekstur við félaga sinn þegar Everton komst yfir í leiknum. Freddie Woodman, þriðji markmaður Liverpool, kom í markið í stað Georgíumannsins. Hann lék mjög vel eftir að hann kom inn á í 1:2 sigri Liverpool.
Giorgi fékk slæman skurð rétt fyrir neðan vinstra hnéð þegar hann meiddist gegn Everton. Sárið var opið og þess vegna hefur það tekið sinn tíma að gróa.

Það má slá því föstu að Giorgi Mamardashvili hefði verið í marki Liverpool alla leikina sem Alisson hefur misst af en meiðsli hans hafa haldið honum frá æfingum og keppni. En á sama tíma hafa þau gefið Freddie tækifæri sem hann hefur fært sér í nyt.
-
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur! -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Victor Munoz keyptur! -
| Sf. Gutt
Þrír þjálfarar fara! -
| Sf. Gutt
Landsliðsferill Wataru Endo á enda! -
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið!

