Hvað gerist eftir keppnistímabilið?

Verður Arne Slot áfram framkvæmdastjóri Liverpool eftir að þessari leiktíð lýkur? Ef ekki hverjir koma til greina sem arftakar Hollendingsins? Hvað gerist eftir keppnistímabilið?

Xabi Alonso er helst nefndur. Hann var mjög mikið í umræðunni þegar Jürgen Klopp tilkynnti um að hann myndi hætta sem framkvæmdastjóri Liverpool. Xabi var þá hjá Bayer Leverkusen. Hann hætti þar í lok síðustu leiktíðar og tók svo við sem framvkæmdastjóri Real Madrid. Hann var ekki lengi þar í starfi og er nú á lausu. Flestir stuðningsmenn Liverpool sem vilja breyta til með framvkæmdastjóra myndu vilja fá Xabi. Hann er á lausu.
Annar Spánverji Andoni Iraola sem hættir sem framkvæmdastjóri Bournemouth núna í lok leiktíðar er talinn efnilegur. Hann tók við liðinu sumarið 2023. Nokkur stórlið eiga að hafa áhuga á að fá hann til sín. Trúlega endar hann á meginlandinu. Hann hefur þó verið orðaður við Chelsea. Hann er á lausu.
.jpg)
Þriðji Spánverjinn sem vekur áhuga er Luis Enrique sem er framkvæmdastjóri Paris St Germain. Hann gerðist framkvæmdastjóri Paris um sumarið 2023. Það er mjög ólíklegt að hann fari frá Paris að sinni. Hann er ekki á lausu.
Í raun hafa ekki mikið fleiri verið orðaðir við framkvæmdastjórastöðu Liverpool. Það er verði staðan á lausu núna þegar keppnistímabilinu lýkur seinna í þessum mánuði.
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? Sem fyrr segir er líklegast, að öllu óbreyttu, að forráðamenn Liverpool muni sýna Arne Slot tryggð. En það á eftir að reyna á tryggðina þegar meirihluti stuðningsmanna Liverpool hefur snúist gegn Arne.
-
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð

