Fimm sæti í Meistaradeildinni

Svo því sé haldið til haga fá fimm ensk lið sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili. Ekki fjögur lið eins og venjulega. Ástæðan er góður árangur enskra liða í Evrópukeppnum á síðustu sparktíðum.
Hart verður barist um þessi fimm sæti það sem lifir leiktíðar. Liverpool er nú í fjórða sæti deildarinnar. Áður en leiktíðinni lýkur mætir Liverpool Manchester United og Aston Villa sem eru líka að berjast um sæti þrjú, fjögur og fimm. Báðir þessir leikir eru á útivöllum og verða sérlega erfiðir. Liverpool á eftir heimaleiki við Chelsea og Brentford. Þessi lið eru líka að berjast um Evrópusætin sem eru í boði. Það eru þvi engir auðveldir leikir eftir og það má ekkert út af bera í þeim leikjum sem eftir eru til loka sparktíðarinnar!
Svo það sé nefnt gæti sjötta sæti deildarinnar líka gefið sæti í Meistaradeildinni. Til að það gerist verður Aston Villa að vinna Evrópudeildina og að auki enda í fimmta sæti ensku deildarinnar.
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!

