Nýir búningar kynntir!

Í morgun var nýr búningur Liverpool kynntur. Um er að ræða rauða aðalbúninginn og reyndar markmannsbúning líka. Liverpool leikur nú og á næstu árum í búningum frá Adidas.

Rauði aðalbúningurinn er hefðbundinn. Rauður með hvítum Adidas röndum. Rendurnar eru reyndar breiðar þetta árið. Kraginn er hringlaga með hvítri mjórri rönd að ofan. Stuttbuxur og sokkar eru í rauðum lit með hvítum röndum.



Aðaleinkenni búningsins er hvítt mynstur. Mynstrið er í ætt við mynstur sem var á búningum sem Liverpool spilaði í á leiktíðunum 1989/90 og 1990/91. Á myndunum hér að ofan má sjá búninginn. Á efstu myndinni er liðsmynd af Englandsmeisturunum á sparktíðinni 1989/90.

Markmannstreyjan er svipuð aðaltreyjunni. Hún er dökkgræn með hvítu mynstri. Markmannstreyjan hjá Liverpool á leiktíðunum sem áður eru nefndar var ljósari. Á myndinni að ofan er Bruce Grobbelaar í slíkri treyju.
Hér er hægt að skoða búningana. Eins er hægt að skoða æfingabúninga og annan varning. Slóð á vefverslun Liverpool fylgir.
-
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins

