Hvað getur gerst?

Eftir síðustu leiki liggur flest fyrir í Úrvalsdeildinni á Englandi. Liverpool hefur nú sæti í Meistaradeildinni svo til gulltyggt. Ekkert nema miklar furður geta breytt því.
Liverpool er nú í fimmta sæti með 59 stig. Bournemouth getur náð Liverpool að stigum en markatala Liverpool er mun betri. Liverpool er með tíu mörk í plús en Bournemouth fjögur. Bouremouth leikur á útivelli við Nottingham Forest á meðan Liverpool fær Brentford í heimsókn á Anfield Road. Bournemouth þarf því stórsigur og á sama tíma verður Liverpool að tapa stórt.
Aston Villa er með 62 stig í fjórða sæti. Ef Liverpool vinnur Brentford og Villa tapar fyrir Manchester City í Manchester myndi Liverpool ná fjórða sæti deildarinnar. Liverpool hefur betra markahlutfall en Villa.

Fyrir síðustu umferð liggur fyrir að Arsenal er Englandsmeistari og tekur við titlinum af Liverpool. Arsenal varð meistari þegar Manchester City gerði 1:1 jafntefli í Bournemouth í gærkvöldi.
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly

