Aftur til fortíðar!

Mohamed Salah dró ekkert undan þegar hann birti færslu á Instagram síðu sinni eftir tap Liverpool fyrir Aston Villa. Hann vill að félagið fari til fortíðar í hugmyndafræði. Egypski Kóngurinn vill að liðið fari aftur að spila þungarokksknattspyrnu eins og það gerði á valdatíma Jürgen Klopp.
,,Ég varð vitni að því þegar þetta félag fór frá efasemdum til trúfestu og með þá trúfestu að leiðarljósi til þess að verða meistarar. Það tókst með mikilli vinnu. Ég lagði alltaf allt sem í mínu valdi stóð í sölurnar til að hjálpa félaginu að komast þessa leið. Ekkert hefur fyllt mig jafn miklu stolti."
„Það var mjög sárt að sjá okkur hrynja saman í enn einum ósigrinum á þessu tímabili. Stuðningsmenn okkar eiga ekki svona skilið. Ég vil sjá Liverpool verða aftur lið sem spilar þungarokksknattspyrnu sem andstæðingarnir óttast og verða aftur lið sem vinnur titla. Þetta er sú knattspyrna sem ég kann að spila og þetta er sjálfsmyndin sem þarf að endurheimta og halda í til frambúðar. Þetta er ekkert samningsatriði og allir sem ganga til liðs við þetta félag ættu að aðlagast því að spila svona knattspyrnu."

,,Hjá Liverpool er ekki nóg að vinna nokkra leiki hér. Öll lið vinna leiki. Liverpool er félag sem mér og fjölskyldunni minni þykir einstaklega vænt um. Ég vil að félagið verði sigursælt löngu eftir að ég verð farinn á braut. Ég hef alltaf sagt að það sé lágmarkskrafa að komast í Meistaradeildina á næsta keppnistímabili og ég mun gera allt sem ég get til að það takist."
Svo mörg voru þau orð!
-
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!

