Í undanúrslit!

Karlaliðið mátti þola afhroð í FA bikarnum þegar það tapaði 4:0 á útivelli fyrir Manchester City. En kvennaliðið stóð undir nafni, vann og komst í undanúrslit í FA bikar kvenna. Sannarlega vel af sér vikið.
Liverpool mætti Charlton Athletic á útivelli í gær. Charlton er næst efst á markahlutfalli í næst efstu deild. Eftir venjulegan leiktíma var markalaust. Liverpool sótti linnulítið og þegar fimm mínútur voru eftir af framlengingu bar sóknin árgangur þegar Zara Shaw skoraði markið sem kom Liverpool í undanúrslit.
Liverpool hafði áður slegið London Bees og Everton út úr FA bikarnum. Liverpool burstaði London Bees úti 0:6. Í átta liða úrslitum vann Liverpool Everton 2:1. Mia Enderby og Beata Olsson komu Liverpool í 2:0 áður en Everton lagaði stöðuna. Ekki amalegt að slá Everton úr leik!
Liverpool mætir Brighton and Hove Albion í undanúrslitum 9. maí. Í hinum leiknum spila Chelsea og Manchester City. Þessi lið eru tvö efstu liðin í kvennadeildinni. Manchester City er í efsta sæti með níu stiga forystu.
-
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið?

