Leikjatilfærslur

Búið er að tímasetja leiki Liverpool núna í mars. Hér er listi leikjanna með nýjum tímasetningum. Gott að vita þetta ef verið er að velta ferðalögum fyrir sér.
Fyrsti leikurinn er útileikur við Wolverhampton Wanderes og fer hann fram í kvöld. Leikurinn byrjar stundarfjórðung yfir átta.
Leikur tvö er við sama lið á sama stað í annað sinn á fjórum dögum. Fyrir allmikla tilviljun mætast Liverpool og Wolves á föstudagskvöldið 6. mars klukkan átta. Leikurinn er í fimmtu umferð FA bikarsins. Leikið verður til þrautar með framlengingu og vítaspyrnukeppni ef með þarf.

Sunnudaginn 15. mars mætir Liverpool Tottenham Hotspur á Anfield Road. Leikurinn byrjar klukkan hálf fimm. Allir muna eftir síðustu heimsókn Tottenham til Liverpool. Rauði herinn tryggði sér þá enska meistaratitilinn með 5:1 sigri í lok apríl!

Liverpool og Galatarasay ljúka 16 liða úrslitarimmu sinni miðvikudagskvöldið 18. mars. Flautað verður til leiks klukkan átta á Anfield.
Síðasti leikurinn í mars fer fram laugardaginn 21. mars. Liverpool fer þá til Brighton og tekur hús á heimamönnum. Leikurinn byrjar klukkan hálf eitt.
Eftir leik Liverpool og Brighton tekur við landsleikjahlé. Liverpool spilar ekki aftur fyrr en eftir páska.
Allar tímasetningar eru að íslenskum og breskum tíma. Sami tími er á þessum eyjum yfir háveturinn.
-
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
James efstur á blaði! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz á að vera í lagi! -
| Sf. Gutt
Mætið tímanlega! -
| Sf. Gutt
Alexander Isak farinn að braggast -
| Sf. Gutt
Af lánsmönnum -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp í ábyrgðarmiklu hlutverki!

