| Sf. Gutt

Hvað gerist? - Uppfært í dag og fram á kvöld!

Í kvöld verður lokað fyrir félagskipti knattspyrnumanna. Eins og vant er verður fylgst grannt með gangi mála hér á Liverpool.is. 

15:00. Talið er að Liverpool hafi tryggt sér kauprétt á Ifeanyi Ndukwe frá austurríska liðinu Austria Wien. Um er að ræða efnilegan varnarmann. Kaupin eiga að ganga í gegn í sumar. 

14:00. Fyrr í mánuðinum keypti Liverpool Mor Talla Ndiaye. Hann er frá Senegal og er talinn mjög efnilegur varnarmaður. Hann kom frá Amitie F.C. í heimalandi sínu og sagt er að Liverpool hafi borga eina milljón sterlingspunda. 

13:00. James McConnell er kominn heim til Liverpool eftir að hafa verið í láni hjá Ajax. Sama má segja um markmanninn Harvey Davies. Hann var í láni hjá Crawley Town en er nú kominn til baka.

12:00. Upp skaut fréttum um að Curtis Jones myndi kannski fara í lán eða fyrir fullt og fast til Inter Milan. Ekkert varð af þessu hafi það á annað borð staðið til. 

11:00. Talið er að Liverpool muni borga Rennes um 60 milljónir sterlingspunda fyrir Jeremy. Reiknað er með því að hann fari í læknisskoðun í dag. 

10:00. Tottenham Hotspur og Liverpool voru í síðustu viku í viðræðum um vistaskipti Andrew Robertson. Ekki er alveg vitað um hversu langt þær viðræður voru komnar. Ekkert verður af þessum vistaskiptum því Liverpool vill ekki missa Andrew. Reyndar var furðulegt að Liverpool gæfi yfirleitt kost á að Andrew færi frá félaginu. 

09:00. Liverpool og franska liðið Rennes hafa svo til náð samkomulagi um kaup á varnarmanninum Jeremy Jacquet. Jeremy er tvítugur miðvörður. Hann þykir mikið efni og hefur spilað með yngri landsliðum Frakklands. Rennes vill ekki láta hann frá sér fyrir í sumar og þar við situr. Ekkert hefur verið tilkynnt opinberlega um málið af félögunum.

08:00. Í gærkvöldi var Lutsharel Geertruida, sem er hollenskur varnarmaður, orðaður við Liverpool. Lutsharel, er miðvörður, er leikmaður RB Leipzig en er í láni hjá Sunderland. Liverpool vildi breyta láninu þannig að hann losnaði frá Sunderland og spilaði með Liverpool til vors. Ekki náðist samkomulag um þetta. 

07:00. Ekki er líklegt að mikið gerst í innkaupum eða brottförum í dag. Þó bárust fréttir í gærkvöldi um að nýr maður sé á leiðinni.  

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan