Af kvennaliðinu

Svo öllu sé nú haldið til haga þá skal hér farið yfir leiki Liverpool í desember. Liðinu gekk ekki vel í jólamánuðinum frekar en fyrr á leiktíðinni.
Liverpool mætti Arsenal í fyrsta leik mánaðarins. Leikið var í London. Við ramman reip var að draga enda Arsenal ríkjandi Evrópumeistari. Arsenal vann 2:1. Olivia Smith kom Arsenal yfir en Beata Olsson jafnaði með því að skora í sínum fjórða deildarleik í röð. Stina Blackstenius skoraði sigurmarkið þegar tvær mínútur voru eftir. Góð frammistaða Liverpool. Líklega fannst stuðningsmönnum Liverpool sárt að Olivia skyldi skora gegn Liverpool því hún var með Liverpool á síðustu leiktíð.
Næsti leikur var á útivelli á móti Aston Villa. Heimakonur unnu 3:0.
Liverpool var aðeins með tvö stig fyrir síðasta deildarleik ársins sem var á útivelli gegn West Ham United sem var næst á undan Liverpool. Liverpool varð fyrir áfalli á 19. mínútu en þá var Gemma Bonner rekin af velli. West Ham komst yfir eftir hlé en Mia Enderby jafnaði. Aftur náði West Ham forystu en Beata Olsson jafnaði 2:2 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Vel gert að ná stigi manni færri en liðið sem fyrr á botni deildarinnar!
Árið endaði hræðilega. Liverpool tók þá á móti Deildarbikarmeisturum Chelsea í átta liða úrslitum Deildarbikarsins. Til að gera langa sögu stutta tapaði Liverpool 1:9! Chelsea sundurspilaði Liverpool og komst fimm mörkum yfir áður en Jenna skoraði. Chelsea lét ekki markið trufla sig og bætti fjórum mörkum við á lokakafla leiksins. Algjör niðurlæging sem mest má verða.
-
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Peningar í kassann! -
| Sf. Gutt
Kostas kominn heim! -
| Sf. Gutt
Liðshópur Liverpool sem fór til Bandaríkjanna! -
| Sf. Gutt
Spánverjar heimsmeistarar! -
| Sf. Gutt
Dominik Szoboszlai verður um kyrrt!

