| Sf. Gutt

Fyrir 15 árum!

Í dag eru 15 ár liðin frá því Liverpool Football Club var bjargað ef þau orð mætti nota um það þegar John Henry og félagar náðu félaginu okkar úr höndum þeirra George Gillett og Tom Hicks. Mikið hafði gengið á dagana á undan og baráttan um Liverpool F.C. fór fram fyrir rétti og lengi vel var tvísýnt um hvort meirihluti stjórnar Liverpool hefði sitt fram í að selja félagið til New England Sports Ventures. Allt fór á besta veg og John Henry og félag hans eignaðist Liverpool F.C. Eigendaskiptin voru staðfest föstudaginn 15. október 2010. 

 

Það hefur svo sem ekki allt gengið smurt frá því John og félagar hans eignuðust Liverpool F.C. Það er líka sjaldan sem allt gengur snuðrulaust í lífi þessa mikla knattspyrnufélags. Að minnsta kosti erum við stuðningsmenn Liverpool orðnir ýmsu vanir í gegnum árin!

Það er þó ekki ekki vafi á því að það var algjörlega nauðsynlegt að ná félaginu af þeim George og Tom. Í raun, ef allt hefði farið á versta veg, hefði félagið getað orðið gjaldþrota með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 



Nú gengur rekstur félagsins mjög vel. Síðustu árin hafur félagið styrkst hægum en öruggum skrefum innan vallar jafnt sem utan. Fá knattspyrnufélög hafa verið rekin betur á seinustu árum. 

Stækkun Anfield var lykilatriði í sambandi við tekjuöflun en eigendur Liverpool ákváðu að vinna að stækkun frekar en að reisa nýjan leikvang. Fyrst var Aðalstúkan endurbyggð og svo Anfield Road end stúkan. Leikvangurinn tekur nú eftir þessar 61.276 áhorfendur.  

Ekki nóg með að tvær stúkur á Anfield hafi verið endurbyggðar á valdatíma FSG. Nýtt æfingasvæði var hannað og byggt. Aðallið Liverpool flutti bækistöðvar sínar frá Melwood á nýja AXA æfingasvæðið í Kirkby 2020. Melwood fékk nýtt hlutverk og er núna æfingasvæði kvennaliðs Liverpool. 




Í þessum mánuði fyrir tíu árum réðu John Henry og FSG Þjóðverjann Jürgen Klopp sem framkvæmdastjóra í stað Brendan Rodgers. Sú ráðning var sannkallað snilldarráð. Við tóku viðburðarík og ógleymanleg ár. Jürgen gerði Liverpool að besta liði Evrópu, heimsins og Englands. Jürgen yfirgaf Liverpool vorið 2024. Þá hafði hann stýrt Liverpool til átta titla.

 

 

 

Arftaki Jürgen var Hollendingurinn Arne Slot. Fyrsta keppnistímabil hans hefði ekki getað gengið betur. Liverpool varð Englandsmeistari með glæsibrag. Draumabyrjun hjá Arne og 20. Englandsmeistaratitlinum var innilega fagnað fyrir framan stuðningsmenn Liverpool á Anfield Road!

Stöðu Liverpool F. C. er ekki saman að líkja nú og fyrir 15 árum þegar allt stefndi í strand. Atburðir 15. október fyrir 15 árum, þegar New England Sports Ventures, náði eignarhaldi á Liverpool voru einfaldlega vendipunktur í sögu félagsins á seinni árum! 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan