| Sf. Gutt

Valdatíð Arne Slot hófst í dag!


Valdatíð Arne Slot hófst í dag! Hann tók formlega við störfum sem yfirþjálfari Liverpool eins og starf hans er nefnt í yfirlýsingu á heimasíðu Liverpool Football Club. Í yfirlýsingunni er sagt að dagurinn í dag sé hans fyrsti í nýja starfinu.  

Þann 20. maí var tilkynnt á heimasíðu Liverpool Football Club að Hollendingurinn Arne Slot yrði arftaki Jürgen Klopp sem framkvæmdastjóri. Í þeirri tilkynningu var sagt að Arne tæki við störfum 1. júní. Það gekk eftir í dag. 

Í tilkynningu dagsins kom fram að tilkynnt yrði síðar um hvenær Arne verði opinberlaga kynntur sem nýr yfirþjálfari Liverpool. Eins var greint frá því að æfingar Liverpool fyrir nýja leiktíð hefjist í júlí. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan