Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila!

Tilkynnt hefur verið um nýjan aðalstyrktaraðila Liverpool Football Club. Flugfélag mun taka við af banka frá og með næsta keppnistímabili.
Nýi styrktaraðilinn er tyrkneska flugfélagið Turkish Airlines. Flugfélagið tekur við sem aðalstyrktaraðili Liverpool F.C. af alþjóðabankanum Standard Chartered næsta sumar. Bankinn hefur verið aðalstyrktaraðili Liverpool frá því árið 2010 eða í 17 leiktíðir. Talið er að samningurinn við tyrkneska flugfélagið sé einn hæsti styrktarsamningur sem knattspyrnufélag hefur gert við nokkuð fyrirtæki hingað til.
Turkish Airlines var stofnað árið 1933. Flugfélagið flýgur til 131. lands og 352 áfangastaða. Ekkert flugfélag í heiminum flýgur til fleiri landa. Turkish Airlines er nú talið fjórða stærsta flugfélag í heimi.
Tyrkneska flugfélagið er fimmta fyrirtækið sem hefur auglýst framan á búningum Liverpool frá því Hitachi varð fyrst fyrirtækja til að gera það á árunum 1979 til 1982. Crown paints tók við 1982 og var til 1988. Þá var komið að Candy sem var á treyjum Liverpool frá 1988 til 1992. Carlsberg var frá 1992 til 2010. Þá tók Standard Chartered við og hefur verið síðan.
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika!

