| Sf. Gutt

Eins og draumur!

Lewis Koumas hefur vakið verðskuldaða athygli það sem af er leiktíðar. Hann er búinn að berjast eins og ljón og hefur látið finna fyrir sér. Fyrir keppnistímabilið var talið líklegt að hann yrði lánaður en svo varð ekki. Hann segir að byrjun leiktíðarinnar hafi verið eins og draumur. Hann átti ekki von á svona mögum tækifærum með aðalliðinu.

,,Nei ég hefði haldið að ég væri að vakna upp af draumi. Þetta er eiginlega alveg bilað. En ég er hæstánægður og mjög þakklátur fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið."

,,Maður veit aldrei hvenær síðasti leikurinn með Liverpool verður. Þess vegna reyni ég að leggja mig allan fram í hverjum einasta leik. Mér finnst svo mikils virði að spila fyrir hönd Liverpool Football Club sem ég tel vera besta félag í heimi."

Lewis er 21. árs. Hann spilaði einn leik á leiktíðinni 2023/24 og það sem meira var þá skoraði hann. Liverpool vann þá Southampton 3:0 í FA bikarnum. Hann var í liðshópi Liverpool sem vann Deildarbikarinn, á þessari lektíð, eftir 1:0 sigur á Chelsea á Wembley. 

Á leiktíðinni á eftir var hann í láni hjá Stoke City og vegnaði mjög vel. Á síðasta keppnistímbili fór hann fyrst í lán til Birmingham City og svo til Hull City. Hull komst upp í efstu deild í vor og átti Lewis sinn þátt í því.  

Lewis er búinn að spila fyrir aðallandslið Wales og í sumar skoraði hann sitt fyrsta landsliðsmark. Framganga hans lofar sannarlega góðu. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan