Reyni að gera mitt allra besta alla daga!

Dominik Szoboszlai, Alisson Becker og Joe Gomez eru ásamt Virgil van Dijk í leiðtogahópi Liverpool sem Andoni Iraola skipaði í sumar. Virgil er fyrirliðinn en hinir eru til vara. Dominik segist telja að hann hafi verið tilbúinn að vera hluti af leiðtogahópnum.
,,Mér finnst það. Ef satt skal segja þá hef ég aldrei verið lengur hjá neinu knattspyrnufélagi. Þetta er fjórða keppnistímabilið mitt hérna. Ég reyni að gera mitt allra besta á hverjum einasta degi. Í hverjum einasta leik og á hverri einustu æfingu. Ég er kannski ekki að segja mikið í búningsherberginu. Virgil, Joey og Ali gera meira af því. Þeir eru jú búnir að vera lengur hérna en ég. Þó ég geti alveg hvatt menn með orðum finnst mér finnst betra að láta verkin tala inni á vellinum. En það þarf að gera hvoru tveggja."

Dominik Szoboszlai er alls ekki óreyndur sem fyrirliði og leiðtogi. Hann er búinn að vera fyrirliði ungverska landsliðsins frá 2022. Dominik var aðeins tvítugur þegar hann tók við fyrirliðastöðunni hjá landsliðinu.
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

