| Sf. Gutt

Í minningu

Þann 20. september síðastliðinn var ár liðið frá því Matt Beard fyrrum þjálfari kvennaliðsins lést. Matt féll fyrir eigin hendi.

Fráfall Matt var auðvitað ólýsanlegt áfall fyrir fjölskyldu hans. Eins fékk dauði hans mikið á kvennalið Liverpool því flestar í liðinu höfðu haft kynni af honum. Í raun syrgði allur kvennaknattspyrnuheimurinn á Englandi Matt því hann hafði þjálfað fjölda leikmanna í hinum og þessum liðum.  

Matt hefur verið minnst á árinu. Í apríl var hann tekinn inn í Heiðurshöll efstu deildar kvenna á Englandi. Fyrir skemmstu var tré gróðursett fyrir utan Anfield í minningu Matt. Sama dag var vígður minningargarður, sem ber nafn Matt, við Melwood æfingasvæðið þar sem kvennalið hefur nú höfuðstöðvar sínar. Þar eru tré og plöntur. Í garðinum eru bekkir þar sem hægt er að setjast niður í ró og friði. 

Matt Beard fæddist 9. janúar 1978 í Roehampton á England. Hann lætur eftir sig eiginkonu Debbie. Þau eiga tvö börn saman og auk þeirra ólst sonur Debbie frá fyrra hjónabandi upp hjá þeim. 

Matt hóf snemma að þjálfa. Fyrir utan þjálfun á yngri liðum stýrði Matt kvennaliðum Millwall, Chelsea, Liverpool, Boston Breakers, West Ham United, Bristol City og Burnley.

Matt kom fyrst til Liverpool 2012. Hann gerði kvennalið Liverpool að Englandsmeisturum 2013 og 2014. Hann var kjörinn Framkvæmdastjóri ársins bæði árin. Á myndinni að ofan er Matt lengst til hægri í efstu röð þegar Liverpool fagnaði Englandsmeistaratitlinum 2014. Haustið 2015 yfirgaf Matt Liverpool og tók við þjálfun Boston Breakers í Bandaríkjunum.

Vorið 2021 var Matt aftur ráðinn til Liverpool. Liðið var þá í næst efstu deild. Hann leiddi liðið með glæsibrag til sigurs í deildinni vorið 2022. Í febrúar í fyrra var tilkynnt að Matt væri hættur störfum sem framkvæmdastjóri Liverpool. Nú síðast þjálfaði Matt hjá Burnley í tvo mánuði núna í sumar. 

Matt var mjög virtur knattspyrnuþjálfari og var hvarvetna sem hann starfaði bæði virtur og vinsæll. Auk þess að stýra Liverpool til tveggja meistaratitla kom hann Chelsea og West Ham United í úrslit í FA bikarnum. Báðir úrslitaleikirnir töpuðust. 

Hér má lesa frétt um þegar minning Matt Beard var heiðruð.

Hvíl í friði. 

YNWA

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan