Líkt og ólíkt!

Liverpool hefur nú tekið fyrstu skrefin undir stjórn Andoni Iraola. Skiljanlega er strax farið að bera leikstíl Liverpool hjá Andoni saman við leikstílinn sem Arne Slot lagði upp með. Eins eru þeir tveir bornir saman. Alexis Mac Allister hefur þetta um þá tvo að segja.
,,Ég hef ekki áhuga á að standa í því að bera þá saman en sumt er líkt með þeim og annað ólíkt. Það er ekkert nýtt undir sólinni í knattspyrnunni. Það hefur lengi legið fyrir hvernig hún virkar. Það er ekki hægt að gera neitt sem er alveg nýtt. Auðvitað er sumt líkt og annað ólíkt. Það er hið besta mál. Okkur finnst þægilegt að spila undir stjórn Andoni. Arne stýrði okkur til sigurs í Úrvalsdeildinni. Það er ekkert áhlaupaverk að vinna hana."
,,Báðir eru þeir frábærir framkvæmdastjórar. Félagið hefur sýnt og sannað í gegnum árin að það fær ekki bara góða leikmenn til liðs við sig. Það hefur líka ráðið góða framkvæmdastjóra."
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Til hamingju!

