Alvaro Arbeloa á Anfield!

Alvaro Arbeloa, fyrrum leikmaður Liverpool, stýrði Fulham á Anfield Road fyrr í mánuðinum. Hann náði að leggja leikinn vel upp og Fulham fór heim til London með stig eftir markalaust jafntefli.

Alvaro Abeloa kom til Liverpool frá Deportivo La Coruna í janúar 2007. Hann spilaði 98 leiki með Liverpool, skoraði tvö mörk og lagði upp fimm. Hann fór til Real Madrid sumarið 2009 en þar hafði hann hafið feril sinn. Hann lauk keppnisferli sínum hjá West Ham United.
Alvaro varð fjórði fyrrum leikmaður Liverpool til að stýra liði gegn Liverpool í deildarleik eftir að Úrvalsdeildin hóf göngu sína. Er þá átt við leikmenn sem spiluðu með Liverpool á tíma Úrvalsdeildarinnar. Hinir voru þeir Paul Ince (Blackburn Rovers), Mauricio Pellegrino (Southampton) og Steven Gerrard (Aston Villa).
Alvaro hóf þjálfun hjá Real Madrid 2020. Hann þjálfði yngri lið félagsins en á síðasta keppnistímabili hljóp hann í skarðið eftir að Xabi Alonso, fyrrum liðsfélagi hans hjá Liverpool, var látinn hætta sem framkvæmdastjóri. Í sumar tók hann við sem framkvæmdastjóri Fulham.
Spánverjinn var ánægður með að koma aftur á Anfield. Þangað hafði hann ekki komið fá því hann fór. ,,Ég er ánægður með að vera kominn aftur á Anfield. Leikvangurinn er einstakur og það sama má segja um stuðningsmennina. Ég er hingað kominn í fyrsta sinn og vonandi kem ég hingað aftur."
Stigið sem Fulham fékk á móti Liverpool var það fyrsta sem liðið fékk á leiktíðinni eftir töp í fyrstu leikjunum. Alvaro gat því vel við unað í sinni fyrstu heimsókn sem framkvæmdastjóri til Liverpool.
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

