Andrew Robertson hylltur!

Andrew Robertson fékk höfðinglegar og innilegar móttökur þegar hann kom aftur á Anfield Road, sinn gamla heimavöll, fyrr í haust. Hann kom inn sem varamaður, fyrir Destiny Udogie, á 57. mínútu Deildarbikarleiks Liverpool og Tottenham Hotspur. Liverpool vann 3:1. Allir áhorfendur risu á fætur og klöppuðu fyrir Skotanum þegar hann hljóp inn á í kjölfar skiptingarinnar. Um leið var ,,lagið hans" sungið af The Kop og öðrum. Mögnuð stund sem fer í annála Liverpool Football Club. Andrew sagði þetta eftir leikinn.
,,Ég vissi að það yrði tilfinningaþrungin stund þegar ég kæmi til baka á Anfield. En ég var alls ekki viðbúinn því að fá svona móttökur. Ég verð bara að viðurkenna að ég fékk gæsahúð þegar stuðningsmennirnir stóðu upp og sungu Oh Andy, Andy. Svona augnablikum gleymir maður ekki."
Það var líka klappað vel fyrir Andrew þegar hann kom út á völl til að hita upp fyrir leikinn. Eftir að flautað var til leiksloka gekk Andrew um völlinn og klappaði fyrir stuðningsmönnum sínum. Fyrrum liðsmenn hans í Liverpool föðmuðu hann hver af öðrum að sér.

Andrew Robertson kom til Liverpool frá Hull City sumarið 2017. Hann fór, í sumar, til Tottenham á frjálsri sölu. Andrew lék 378 leiki með Liverpool. Hann skoraði 14 mörk átti 69 stoðsendingar. Algjörlega einstakur leikmaður!
-
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði

