Til hamingju!

Arne Slot fæddist þann 17. september 1978. Hollendingurinn er og verður í annálum Liverpool Football Club um alla framtíð. Það er því rétt og skylt að óska Arne til hamingju með afmælið þó seint sé.

Arne, eins og hann er kallaður, hóf að þjálfa unglinga hjá Zwolle. Cambuur var fyrsta atvinnumannaliðið sem Arne stjórnaði. Hann fór þaðan til AZ Alkmar og svo til Feyenoord. Arne gerði Feyenoord að Hollandsmeisturum og svo bikarmeisturum áður en Liverpool réði hann sem framkvæmdastjóra 2024.

Liverpool var óstöðvandi á fyrsta keppnistímabili Arne Slot og varð Englandsmeistari í 20. sinn í sögu félagsins. Síðasta keppnistímabil var jafn slæmt og hitt var glæsilegt. Eftir keppnistímabilið var valdatíð Arne á enda og hann hélt á braut.
Þó svo að síðasta keppnistímabil hafi verið hrikalegt var það næsta á undan ógleymanlegt. Að verða Englandsmeistari með jafn sannfærandi hætti og raun bar vitni er mikið afrek. Arne Slot á því sinn sess í sögu Liverpool sem einn þeirra framkvæmdastjóra sem hefur unnið Englandmeistaratitilinn!
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

