| Sf. Gutt
Í dag var þriðji búningur Liverpool fyrir þetta keppnistímabil kynntur. Hann er grænleitur með rauðum lit á félagsmerki, letri og ermum. Stuttbuxur og sokkar eru í sama græna lit. Eins og nú tíðkast á búningurinn að vera vísun í eitthvað tengt félaginu og eða Liverpool borg. Í frétt á Liverpoolfc.com segir að búningurinn eigi sér vísun í þá fána og borða sem stuðningsmenn Liverpool hafa búið til og haft með sér á ferðalögum sínum út um alla Evrópu til að styðja liðið sitt.
Liverpool hefur einu sinni áður verið með varabúning með svipuðum lit. Sá búningur var notaður á leiktíðinni 2008/09. Reyndar hefur Liverpool af og til verið með grænt í varabúningum sínum.
Hér er fréttin um nýja búningin.
TIL BAKA
Þriðji búningur Liverpool kynntur!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!
Fréttageymslan