| Elvar Guðmundsson
TIL BAKA
Á þessum degi
Gott föstudagskvöld góðir hálsar! Að vanda var margt í gangi á þessum degi í sögu klúbbsins og m.a. þetta; Fernando með þrennu, Shankly fær hjartaáfall og þeir Suarez og Lallana urðu pabbar.
Þrennur í efstu deild
2009 - Fernando Torres setti þrjú er við slátruðum Hull á Anfield. Geovanni náði þó að jafna leikinn eftir að Torres hafði komið okkur yfir snemma leiks. Áður en fyrri hálfleikur var allur hafði Gerrard sett fjórða markið, 4-1, en það var svo Ryan Babel sem hlóð í tvennu, það síðara með fallegum bogabolta með hælnum yfir markvörð andstæðinganna.
1964 - Bobby Graham gerði hattrick í sínum fyrsta leik fyrir Liverpool er við burstuðum Aston Villa á heimavelli, Ian Callaghan og Roger Hunt voru einnig á skotskónum í þessum leik. Tony Hateley sem síðar gekk í raðir Rauða hersins gerði eina mark gestanna.
1925 - Dick Forshaw náði þrennunni í grannaslag gegn Everton á Anfield, 5-1 urðu lokatölur þar.
Yngstur í sögunni
2012 - Framherjinn Jerome Sinclair varð yngsti leikmaðurinn í sögu Liverpool er hann kom inná í deildarbikarleik gegn WBA, þá aðeins 16 ára og 6 dögum betur. Lánsmaðurinn Nuri Sahin gerði bæði mörk okkar í 2-1 sigri eftir að hafa lent undir. Samed Yesil spilaði einnig sinn fyrsta leik þar sem liðið setti met með 6. sigurleiknum í röð á útivelli í þessari keppni.
Shankly fékk hjartaáfall
1981 - Bill Shankly fékk hjartaáfall og dó því miður þremur dögum síðar. Þennan sama dag gerðum við 1-1 jafntefli úti gegn West Ham þar sem David Johnson stangaði inn jöfnunarmarkið.
Evrópuvaktin
Liverpool hefur leikið fjóra leiki í Evrópukeppnum þennan dag án taps, tveir sigrar og tvö jafntefli.
2001 - Jari Litmanen kláraði Dinamo Kiev með eina marki leiksins á Anfield í Meistaradeildinni. Finninn var í liðinu vegna meiðsla Owen og nýtti sitt tækifæri fullkomlega. Nick Barmby átti skot í tréverkið í leiknum.
1996 - Finnska liðið Myllykosken Pallo-47 var sigrað 3-1 á Anfield í Evrópukeppni bikarhafa með mörkum frá Patrik Berger, Stan Collymore og John Barnes, 4-1 samanlög úrslit.
1972 - Vörn okkar hélt velli í Þýskalandi á móti Frankfurt og markalaust jafntefli staðreynd. Það kom okkur áfram í aðra umferð eftir góðan 2-0 heimasigur í fyrri leiknum.
1995 - Aftur komumst við í aðra umferð í sömu keppni þrátt fyrir 0-0 heima gegn rússneska liðinu Spartak-Alania Vladikavkaz á Anfield. 2-1 útisigur reyndist liðinu dýrmætur og kom okkur áfram.
Slæmur dagur til að mæta West Brom
Við höfum þrisvar leikið gegn WBA þennan dag án þess að sigra.
1896 - Markalaust jafntefli á Anfield staðreynd
1903 - 3-1 tap á heimavelli var niðurstaðan, Jack Cox með eina mark Rauðliða.
1914 - Var rúllað upp á Hawthorns 4-0.
Af vítapunktinum
1992 - Jan Mölby skoraði úr fyrsta Úrvalsdeildarvítinu á Anfield í 3-2 tapi gegn Wimbledon. Steve McManaman með hitt markið í leik þar sem Robbie Earle gerði tvö, hans fyrstu af alls fimm gegn LFC og fyrirliðinn John Fashanu eitt en hann var einnig iðinn við kolann gegn okkur, eða með alls 6 á sínum ferli.
Pabbar
2013 - Luis Suarez varð faðir öðru sinni er Benjamin kom í heiminn.
2012 - Fyrsta barn Adam Lallana, Arthur, fæddist þennan dag.
Tekið af ynwa.tv

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun!
Fréttageymslan