| Grétar Magnússon

Leikir færðir til

Tilkynnt var í dag hvaða leikir í ensku Úrvalsdeildinni hafa verið færðir til vegna beinna sjónvarpsútsendinga.  Alls eru 10 leikir sem færast til hjá Liverpool.


Fyrstu sex leikjum liðsins er öllum breytt og hér má sjá hvernig þetta raðast niður.

Fyrsti leikur tímabilsins átti að fara fram laugardaginn 16. ágúst á Anfield gegn Southampton en hann hefur verið fluttur yfir til sunnudagsins 17. og verður flautað til leiks kl. 12:30 að íslenskum tíma.

Næstu tveir leikir eru erfiðir útileikir, sá fyrri er heimsókn til Manchester City og er sá leikur á dagskrá mánudaginn 25. ágúst kl. 19:00.  Sá seinni er heimsókn til Tottenham sunnudaginn 31. ágúst kl. 12:30.

Heimaleikurinn við Aston Villa verður laugardaginn 13. september en leiktíminn er færður til og verður þetta síðasti leikur þess dags kl. 16:30.  20. september sem er laugardagur er svo útileikur við West Ham, leiktíminn sömuleiðis kl. 16:30.

Fyrri nágrannaslagur tímabilsins er á Anfield og hefjast leikar kl. 11:45 laugardaginn 27. september.

Sunnudaginn 19. október ferðast Brendan Rodgers og félagar til Lundúna að leika við Q.P.R. og byrjar sá leikur kl. 12:30.

Laugardaginn 1. nóvember er ferðalag norður í land til að leika við Newcastle og hefst leikurinn kl. 12:45, athugið að þarna er kominn vetrartími í Bretlandi og hefjast því leikir þar á sama tíma og hér á landi.  Viku síðar, 8. nóvember er heimaleikur við Chelsea sem hefst á sama tíma, 12:45.

Að lokum má svo nefna heimsókn til Crystal Palace sunnudaginn 23. nóvember, flautað verður til leiks kl. 13:30.

Það má svo nefna að leikirnir við Q.P.R. og Crystal Palace gætu breyst þegar kemur í ljós hvaða leikdaga Liverpool fær í Meistaradeild Evrópu.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan