| Sf. Gutt
Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður Afríku, lést þann 5. desember 95 ára að aldri. Þessa mikla leiðtoga hefur verið minnst um allan heim með ýmsum hætti frá því hann lést. Minning hans var heiðruð á Anfield Road fyrir leik Liverpool og West Ham United líkt og á öðrum knattspyrnuleikvöngum á Englandi.
Hermt er að þessi mikli höfðingi hafi verið stuðningsmaður Liverpool og hafi í gegnum tíðina fylgst með úrslitum leikja liðsins. Nelson hitti leikmenn Liverpool þegar liðið fór í æfingaferð til Suður Afríku árið 1994 og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Nelson var þeldökkum knattspyrnumönnum eins og öðrum mikil hvatning og fyrirmynd. Skilaboð David James á Twitter segja sína sögu. ,,Þegar ég er spurður hvaða mann mig langi mest að hitta þá svara ég að ég sé nú þegar búinn að hitta þann mann og hann er Nelson Mandela. Það var mér gríðarlegur heiður að hitta hann. Hvíl í friði." Á myndinni til hliðar má sjá David með félögum sínum í Liverpool og Nelson Mandela.
Hér má sjá þegar Nelson Mandela var minnst á Anfield.
Hér má sjá ýmsa tengda Liverpool F.C. minnast Nelson á Twitter síðunni.
TIL BAKA
Nelson Mandela minnst á Anfield
Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður Afríku, lést þann 5. desember 95 ára að aldri. Þessa mikla leiðtoga hefur verið minnst um allan heim með ýmsum hætti frá því hann lést. Minning hans var heiðruð á Anfield Road fyrir leik Liverpool og West Ham United líkt og á öðrum knattspyrnuleikvöngum á Englandi. Hermt er að þessi mikli höfðingi hafi verið stuðningsmaður Liverpool og hafi í gegnum tíðina fylgst með úrslitum leikja liðsins. Nelson hitti leikmenn Liverpool þegar liðið fór í æfingaferð til Suður Afríku árið 1994 og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Nelson var þeldökkum knattspyrnumönnum eins og öðrum mikil hvatning og fyrirmynd. Skilaboð David James á Twitter segja sína sögu. ,,Þegar ég er spurður hvaða mann mig langi mest að hitta þá svara ég að ég sé nú þegar búinn að hitta þann mann og hann er Nelson Mandela. Það var mér gríðarlegur heiður að hitta hann. Hvíl í friði." Á myndinni til hliðar má sjá David með félögum sínum í Liverpool og Nelson Mandela.
Hér má sjá þegar Nelson Mandela var minnst á Anfield.
Hér má sjá ýmsa tengda Liverpool F.C. minnast Nelson á Twitter síðunni.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn?
Fréttageymslan

