| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Fjöldi vináttulandsleikja fór fram úti um allar grundir í kvöld. Steven Gerrard lék sinn 100. landsleik þegar hann leiddi enska landsliðið til leiks á móti Svíum sem voru að taka nýjan þjóðarleikvang í notkun. Steven varð sjötti leikmaðurinn í sögu enska landsliðsins til að ná 100 leikjum. Hann lék mjög vel og þótti bestur enskra. Glen Johnson var líka í enska liðinu og ekki má gleyma Raheem Sterling sem lék sinn fyrsta landsleik. Hann stóð sig mjög vel. Raheem, sem er fæddur á Jamaíka, varð fimmti yngsti landsliðsmaður Englands frá upphafi vega.

Annars er það af leiknum að segja að Zlatan Ibrahimovic gekk berserksgang og skoraði fernu í 4:2 sigri frænda okkar! Hann skoraði fyrsta markið í leiknum áður en Danny Welbeck, leikmaður Manchester United, og Steven Caulker komu Englendingum yfir. Steven leikur með Tottenham og var að leika sinn fyrsta landsleik. Steven Gerrard lagði upp mark hans með góðri aukaspyrnu. Zlatan tók svo við og gerði út um leikinn. Síðasta mark hans á lokamínútu leiksins mun verða lengi í minnum haft því hann skoraði með hjólhestaspyrnu af hátt í 30 metra færi!

Luis Suarez heldur áfram að skora. Hann skoraði fyrir Úrúgvæ sem vann 1:3 sigur í Póllandi. Hann átti líka þátt í hinum tveimur mörkunum. Sebastian Coates kom ekki við sögu.  

Nuri Sahin var í liði Tyrkja sem gerðu 1:1 jafnteflið við Dani. Daniel Agger fékk sem betur fer frí frá landsliðinu.
 
Ryan McLaughlin, hægri bakvörðurinn ungi, var valinn í landsliðshóp Norður Íra. Hann kom ekki við sögu þegar Norður Írar gerðu 1:1 jafntefli við Azerbaijan í Belfast. Leikurinn var undankeppni HM.

Ungliðar voru á ferðinni í gær. Suso lék sinn fyrsta leik með undir 21. árs liði Spánar en þeir unnu Ítali 3:1. Hann er áður búinn að leika með hinum ýmsu yngri landsliðum Spánar.
 
Þrír leikmenn Liverpool voru í enska undir 21. árs liðinu sem unnu Norður Íra 2:1. Jordan Henderson var fyrirliði og þeir Andre Wisdom og Jack Robinson voru líka í liðinu. Jordan lagði upp fyrra markið með nákvæmri aukaspyrnu sem Connor Wickham skilaði í mark. Hann leikur með Sunderland en Liverpool hafði áhuga á honum þegar hann fór þangað frá Ipswich í fyrrasumar. Þess má geta að Tom Ince, fyrrum leikmaður Liverpool var í enska liðinu og lék mjög vel. Hann spilar auðvitað með Blackpool en mun vera farinn að vekja áhuga stórliða.





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan