| Sf. Gutt

Luis Suarez fer til Manchester United!

Þau ótrúlegu tíðindi eru nú að spyrjast út á Englandi að Luis Suarez sé búinn að ganga frá samningi við Manchester United! Hann mun hafa unnið að því á bak við tjöldin allt frá því í haust að komast frá Liverpool því honum leist ekki á gengi Liverpool og starfsaðferðir Kenny Dalglish eftir að leiktíðin hófst.

Þegar Liverpool mætti Manchester United í fyrra á Anfield Road gekk Luis berserksgang og Liverpool vann 3:1 með þrennu Dirk Kuyt. En Alex Ferguson mun hafa séð í þeim leik að Luis væri maður sem ekki mætti vera lengi hjá Liverpool og hugsaði sér að koma honum í sitt lið. Fregnir herma að Alex hafi strax þá sett sig í samband við umboðsmann Luis og eftir því sem vikurnar liðu var búið til mikið leikrit sem miðaði allt að því að koma Luis til Manchester United og burt frá Liverpool. 

Farsinn í kringum meint kynþáttaníð Luis í garð Patrice Evra í haust mun hafa verið algjörlega hannaður af Luis og umboðsmanni hans í samvinnu við Alex Ferguson og ráðgjafa hans. Það þarf svo sem ekki að spyrja að lymskufullum vinnubrögðum Alex eins og mörg dæmi í gengum árin bera vott um. Lokaatriðið í leikritinu mikla mun svo hafa verið skipulagt á Old Trafford þegar Luis og Patrice tókust ekki í hendur fyrir leik Manchester United og Liverpool. Luis var eins og allir vita búinn að lofa Kenny Dalglish því að taka í hönd Patrice og ljúka máli þeirra sem margir telja að hafi skaðað Liverpool gríðarlega innan vallar sem utan. 

Allt gekk eftir! Þeir Luis og Patrice tókust ekki í hendur enda stóð það greinilega aldrei til. Alex Ferguson úthúðaði Luis svo eftir leikinn og sagði að Liverpool ætti að selja hann! Þá vissu menn ekki að hann var þar með að gera sitt til að grafa all hressilega undan Luis og tortryggja hann í augum stuðningsmanna Liverpool. Á sama tíma mun Luis hafa verið búinn að ganga frá heiðursmannasamkomulagi við Alex um að rifta samningi sínum við Liverpool og semja við Manchester United!

Þessi tíðindi eru auðvitað með ólíkindum og vart hægt að taka trúanleg eftir allan þann stuðning sem forráðamenn Liverpool hafa sýnt Luis í máli hans við Patrice Evra. Mörgum þótti óhæfa að hann skyldi ganga á bak orða sinna við Kenny og hætta við að taka í hönd Patrice en nú er rétta eðli Luis komið í ljós. Margir hafa tortryggt hann frá fyrsta degi enda hefur hann ítrekað á ferli sínum komið sér í vandræði með óheiðarlegum hætti og forkastanlegri hegðun. Verður að segjast að þeesi leikur Luis slær háttalag Fernando Torres út í hafsauga þegar hann bað um sölu frá Liverpool á síðustu stundu áður en lokað var fyrir félagaskipti í fyrra!

Vefsíða Liverpool, Liverpoolfc.tv, og sjónvarpsstöð félagsins, LFCTV, munu seinni partinn í dag birta yfirlýsingu um málið en þar sem Liverpol á gríðarlega mikilvægan leik við Newcastle United núna í hádeginu mun hafa verið ákveðið að fjalla ekkert opinberlega um þessi ótíðindi fyrr en eftir leikinn. Ef grannt er leitað á vefmiðlum, eins og Newsnow fréttaveitunni mun vera hægt að finna fréttir um málið en reyndar herma fregnir að forráðamenn Manchester United séu að beita öllum brögðum til þess að ekkert spyrjist út um þennan fáheyrða svikaleik og mikil ritskoðun á vefmiðlum sé í gangi að undirlagi ráðamanna á Old Trafford.

Við munum síðar í dag að sjálfsögðu birta nánari fréttir af þessum, sem ekki er annað hægt að kalla, flótta og svikum Luis Suarez frá Liverpool þegar og ef þær berast.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan