| AB

Liverpool 5-0 Parma - leikskýrsla

Byrjunarliðið: Westerveld, Traore, Babbel, Hyypia, Henchoz - Barmby, Hamann, Smicer, Gerrard - Owen, Heskey.
Búið að rigna hressilega í Liverpoolborg og völlurinn því nokkuð blautur. Ánægjulegt að sjá Henchoz til í slaginn sem og Traore og Gerrard. Lið Parma er sterkt með leikmenn eins og Thuram, Cannavaro, Fuser, Baggio og Milosevic meðal annarra.

4. mín - Liverpool heppið að vera ekki undir. Milosevic fékk boltann rétt utan markteigs en hitti ekki boltann vel og hann fór beint á Westerveld.

21. mín - Leikurinn nokkuð rólegur þrátt fyrir nokkar hressilegar tæklingar að hálfu Ítalana. Greinilegt strax hver er með lyklavöldin á miðjunni og í vörninni. Eins og herforingjar þarna Gerrard og Hyypia. Smicer fékk sendingu inn í teiginn en hann kiksaði gjörsamlega og boltinn fór langt framhjá.

24. mín - frábær undirbúningur frá Smicer gefur Barmby tækifæri á að koma Liverpool yfir en markvörðurinn kemur vel út á móti honum.

26. mín - Heskey skýtur sér á milli tveggja varnarmanna, hristir af sér Thuram og kemyur boltanum fyrir framhjá markverðinum en enginn Ian Rush þar til að pota boltanum inn og varnarmaðurinn hirðir boltann nokkuð auðveldlega

29. mín - Hamann tekur aukaspyrnu rétt utan teigs, í aðhlaupinu ryður Hyypia sér rúms, skapar pláss og Hamann þrumar boltanum með fallegum sveig í hornið, gjörsamlega óverjandi!! 1-0

35. mín - Owen tekur á Cannavaro, dregur hann út á kantinn, Gerrard hleypur að teignum, fær boltann en hittir hann ekki nógu vel og boltinn siglir framhjá markinu.

39. mín - Barmby á frábæra stungusendingu inn fyrir á Heskey, hann er aðeins til hliðar við markvörðinn, á þrumuskot, boltinn berst út í teiginn skoppandi og þar hefur Barmby betur en varnarmaðurinn og lyftir honum í markið, spurning hvort að varnarmaðurinn hafi komið síðast við hann. 2-0

40. mín - Liverpool beint í sókn aftur, Owen á frábært skot utan úr teignum sem markvörðurinn nær að lyfta yfir skeytin. Parma í miklum vandræðum með spræka Púllara.

Hálfleikur - Liverpool komið um mánuði á undan Parma í undirbúningi fyrir komandi tímabil og ber nokkuð á því. Liverpool einum gír ofar en Parma sem hefur lítið í Púllara. Liðið nokkuð sprækt og Ray Houghton, en margir sjá Barmby gegna svipuðu hlutverki og hann hjá Liverpool, aðstoðar við lýsingu á leiknum og hann er einstaklega hrifinn af frammistöðu Barmby.

Síðari hálfleikur - Þrjár breytingar gerðar á liði Liverpool í hálfleik. Song inná fyrir Babbel, Matteo í stað Traore og McAllister í stað Hamann.

56. mín - góð sending inn í teiginn og Heskey á hörkuskot en markvörðurinn ver glæsilega.

58. mín - glæsilegt þríhyrningsspil milli Barmby og McAllister og Macca sallarólegur setur hann í fjærhornið. 3-0!!!

59. mín. Murphy inná fyrir Gerrard.

64. mín - Owen gegn Thuram við hægra vítateigshornið, skýtur strax en rétt framhjá.

69. mín - Thuram fer óvart í lappirnar á Owen og víti. Owen tekur vítið sjálfur og neglir upp undir þaknetið í mitt markið 4-0!!!!

77. mín - Parma fær marktækifæri!! Cannavaro á glæsilegan skalla eftir hornspyrnu sem stefnir í hornið en Westerveld sýnir frábæra tilburði og blakar boltanum yfir markið.

85. mín - Heskey valtar framhjá bakverðinum og á skot að marki, markvörðurinn nær að fálma í boltann en það er ekki nóg og Owen er grimmur á boltann og skóflar honum inn í mikilli baráttu við varnarmann. 5-0!!!!!

88. mín - góð aukaspyrna frá Macca á hausinn á Owen en markvörðurinn ver vel og neitar stráknum um þrennu.

Leik lokið 5-0
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan