| Sf. Gutt

Skellur í Unglingabikarkeppninni

Liverpool fékk skell í Unglingabikarkeppninni þegar liðið tapaði mjög óvænt fyrir Swansea. Heimamenn unnu 3:1 og eru þau úrslit mjög óvænt því talið var að lið Liverpool ætti góða möguleika á að komast langt í keppninni. Reyndar skal tekið fram að unglingalið Liverpool er mjög ungt í ár og margir gengnir upp úr liðinu sem voru í því á síðustu leiktíð en sama er. 

Swansea skoraði tvívegis fyrir leikhlé. Mörkin komu með rétt mínútu millibili og sáu þeir Scott Tancock og James Loveridge um þau. Snemma í síðari hálfleik kom þriðja markið sem svo gott gerði út um leikinn. Það mark var með öllum ólíkindum. Joe Rafferty hugðist sparka fram völlin þar sem hann var staddur nærri miðju. Það endaði svo að boltinn fór í Jandir Zola, sem kom út á móti honum, og sveif yfir Tyrell Belford í markinu. Lewis Hatch lagaði stöðuna með góðum skalla en Veilsverjar fóru kátir heim. 

Liverpool: Belford, Hatch, Smith, Rafferty (Wilson), Regan, Aylmer (Quirk), Sterling, Pelosi, Morgan, Sumner (Gainford) og Lussey. Ónotaðir varamenn: Baio og Wearing.
 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan