| Sf. Gutt
Jose Reina gat verið stoltur eftir 3:0 sigurleik Liverpool gegn Aston Villa í gærkvöldi. Jose hélt markinu hreinu og þar með var hann búinn að setja nýtt félagsmet og ekki það fyrsta frá því hann kom til Liverpool.
Metið sem Jose setti fólst í því að hann hélt marki Liverpool hreinu í 100. skipti í deildarleik. Hefur enginn markmaður í sögu Liverpool haldið markinu hreinu 100 sinnum í eins fáum leikjum. Leikurinn gegn Aston Villa var 198. deildarleikur Jose í marki Liverpool.
Goðsögnin Ray Clemence átti gamla metið sem var 217 leikir. Önnur goðsögn, Bruce Grobbelaar, náði 100 sinnum hreinu í 225 leikjum.
Þetta nýja met Jose Reina er enn eitt merki þess hversu magnaður markmaður Spánverjinn er. Staðreyndin er sú að hann er orðinn einn besti markmaður í sögu Liverpool og er þó af mörgum mögnuðum markmönnum að taka.
TIL BAKA
Félagsmet hjá Jose Reina
Jose Reina gat verið stoltur eftir 3:0 sigurleik Liverpool gegn Aston Villa í gærkvöldi. Jose hélt markinu hreinu og þar með var hann búinn að setja nýtt félagsmet og ekki það fyrsta frá því hann kom til Liverpool.Metið sem Jose setti fólst í því að hann hélt marki Liverpool hreinu í 100. skipti í deildarleik. Hefur enginn markmaður í sögu Liverpool haldið markinu hreinu 100 sinnum í eins fáum leikjum. Leikurinn gegn Aston Villa var 198. deildarleikur Jose í marki Liverpool.
Goðsögnin Ray Clemence átti gamla metið sem var 217 leikir. Önnur goðsögn, Bruce Grobbelaar, náði 100 sinnum hreinu í 225 leikjum.
Þetta nýja met Jose Reina er enn eitt merki þess hversu magnaður markmaður Spánverjinn er. Staðreyndin er sú að hann er orðinn einn besti markmaður í sögu Liverpool og er þó af mörgum mögnuðum markmönnum að taka.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mun alltaf elska Liverpool! -
| Sf. Gutt
Óheppnasti leikmaður í heimi? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Verðum að leggja harðar að okkur! -
| Sf. Gutt
Jeremine Frimpong meiddur -
| Sf. Gutt
Vildi sýna öllum virðingu -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Curtis með met! -
| Sf. Gutt
Stórsigur í Þýskalandi! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch meiddur
Fréttageymslan

