| Sf. Gutt

Til hamingju!

Í ár eru 135 ár liðin frá því George Kay fæddist. George er einn af þeim framkvæmdastjórum Liverpool sem hefur unnið Englandsmeistaratitil.

George Kay fæddist í Manchester þann 21. september 1891. Hann hóf knattspyrnuferil sinn með Bolton Wanderers árið 1911. Sama ár fór hann til Írlands og hóf að spila með Distillery. Hann spilaði með liðinu til 1915 en þá var Fyrri heimsstyrjöldin hafin. George fór í herinn og barðist í heimsstyrjöldinni.

Styrjöldinni lauk 1918 og árið eftir gekk George til liðs við West Ham United. Honum vegnaði vel þar og var skipaður fyrirliði. Liðið var í annarri deild þegar George kom en komst upp í efstu deild vorið 1923. Þá um vorið komst West Ham í úrslit FA bikarsins. George leiddi West Ham til leiks gegn Bolton. Þetta var fyrsti úrslitaleikurinn sem fór fram á Wembley. Bolton vann 2:0. Árið 1926 yfirgaf George West Ham og fór til Stockport County. Hann lagði skóna á hilluna árið eftir.

George hafði áhuga á þjálfun og hóf störf hjá Luton Town 1927. Hann tók við framkvæmdastjórn liðsins, sem var í þriðju deild, 1929 og stýrði liðinu til 1931. Hann var þá ráðinn til Southampton sem var í annarri deild. Liðinu gekk ekkert sérlega vel en George gat sér samt gott orð þar. Hann var óhræddur við að reyna ýmsar nýjar hugmyndir. Sumarið 1936 settu forráðamenn Liverpool sig í samband við George með það að markmiði að fá hann sem framkvæmdastjóra. Samningar tókust. 

George hafði aðeins verið rúm tvö ár framkvæmdastjóri Liverpool þegar Seinni heimsstyrjöldin braust út. Þegar styrjöldinni lauk tók félagið þá óvenjulega ákvörðun að fara í keppnisferðalag til Bandaríkjanna og Kanada. Þetta reyndist heillaráð því Liverpool vann enska meistaratitllinn á keppnistímabilinu 1946/47 sem var fyrsta heila leiktíðin eftir heimsstyrjöldina.

Liverpool, Manchester United, Stoke City og Wolverhampton Wanderes áttu öll möguleika á titlinum á lokasprettinum. Síðasti leikur Liverpool var á Molineux gegn Úlfunum. Liverpool hafði einu stigi færra en Úlfarnir. Liverpool varð að vinna og bíða eftir úrslitum keppinautana. Þau voru Rauða hernum hagstæð og liðið vann fimmta Englandstitillinn í sögu félagsins. Þetta var hápunkturinn á framkvæmdastjóraferli George Kay.


George tókst ekki að innbyrða annan titil. Hann var þó nálægt stórum titli þegar Liverpool komst í úrslit FA bikarsins, í fyrsta skipti í 36 ár, árið 1950. Liverpool tapaði því miður 2:0 gegn Arsenal. George leiddi liðið í úrslitaleiknum í London þrátt fyrir að hann væri fársjúkur. Það var ljóst að hann gæti ekki setið í stjórastólnum mikið lengur. Hann lét af störfum í janúar 1951 nokkrum mánuðum fyrir sextugsafmælið sitt.

George Kay lést þann 18. apríl 1954.

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan