| Sf. Gutt

Annar hættur en hinn heldur áfram!

Þeir fóstbræður Steven Gerrard og Jamie Carragher hafa tekið ólíkar afstöður með landsliðsferla sína núna eftir að enska landsliðið lauk keppni í Suður Afríku. Steven heldur áfram en Jamie er endanlega hættur.
 
Steven Gerrard: ,,Það kemur ekki til mála að láta leikinn gegn Þjóðverjum, sem olli svo miklum vonbrigðum, verða minn síðasta landsleik. Sá leikur olli auðvitað gríðarlegum vonbrigðum og ég er staðráðinn í því að leggja mitt af mörkum til að bæta úr."

,,Ég á von á því að það verði gerðar miklar breytingar á landsliðshópnum. Landsliðþjálfarinn ákveður auðvitað hvort ég verð valinn en ég ætla að gefa áfram kost á mér í landslið þjóðar minnar."

Jamie Carragher: ,,Það stóð ekki til að þetta yrði lengra núna. Landsliðsþjálfarinn sagði að það væru meiðsli hjá mönnum og ég kom inn í liðshópinn að hjálpa til. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að spila í Heimsmeistarakeppninni og vinna með Capello en ég hef alltaf sagt að fyrir mér er Liverpool Football Club það sem mestu máli skiptir. Roy Hodgson er kominn sem nýr framkvæmdastjóri og ég vil gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa félaginu til að komast aftur þangað sem þar á heima." 

Fabio Capello hefur verið harðlega gagnrýndur eftir að England féll úr leik á HM. Jamie gerði grín með að hann sjálfur eigi kannski meiri sök á hrakförum enska liðsins en Fabio.

,,Ég var auðvitað ekki með liðinu í undankeppninni og þá gekk allt eins og best varð á kosið. Heimsmeistarakeppnin gekk ekki jafn vel. Ég er því kannski vandamálið frekar en Capello!"

Jamie lék tvo leiki á HM og hefur nú spilað 38 landsleiki og þar við situr. Steven spilaði fjóra leiki í Suður Afríku og skoraði eitt mark. Steven hefur leikið 84 leiki og skorað 17 mörk. Hann á örugglega eftir að bæta vel við leiki og mörk.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan