| Sf. Gutt
Nú hefur verið ákveðið að í haust verður leikinn ágóðaleikur fyrir Jamie Carragher á Anfield Road. Ákveðið hefur verið að mótherji Liverpool í leiknum verði Everton og fer leikurinn fram 4. september. Allur ágóði af leiknum fer til góðra málefna í Liverpool borg í gegnum stofnunina "23 Foundation" sem Jamie stofnsetti fyrir nokkru.
Jamie er mjög ánægður með að nú sé búið að ákveða leikdag og ekki síður að samningar hafi tekist við Everton um að spila gegn Liverpool.
"Þetta er búið að vera í undirbúningi í fjóra eða fimm mánuði. Ég hef orðið að hafa hljótt um þetta allt en ég er ánægður með að nú er hægt að byrja að segja almennilega frá þessum viðburði. Allt frá upphafi hefur verið frábært samstarf við Everton og David Moyes. Þegar ég byrjaði að hugsa um ágóðaleik fór ég að velta því fyrir mér hvaða lið kæmi til greina sem mótherji. Nokkur félög komu til álita en Everton var það lið sem ég hugsaði fyrst um."
"Ef ég hefði fengið lið frá útlöndum hefði þurft að borga því fyrir að koma og eins hefði bæst við ferðakostnaður. Ég vildi sleppa við slíkan kostnað því ég vil eiga sem mest eftir af peningum til að útdeila til Liverpool borgar og Merseyside. Allur ágóðinn af leiknum rennur til góðgerðarmála."
"Everton þarf bara að koma hérna yfir garðinn og menn þar á bæ vildu alls ekki taka neitt fyrir að spila leikinn. Allir vita að ég hélt með Everton þegar ég var strákur og mér fannst það vel viðeigandi að þau tvo lið sem hafa skipað stóran sess í lífi mínu leiddu saman hesta sína í þessum leik."
Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Liverpool og Everton geti strax farið að hlakka til þessa leiks. Jamie hefur tilkynnt að Liverpool liðið verði skipað leikmönnum sem hafa spilað með honum frá því hann hóf að leika fyrir félagið.
TIL BAKA
Ágóðaleikur fyrir Jamie Carragher!
Nú hefur verið ákveðið að í haust verður leikinn ágóðaleikur fyrir Jamie Carragher á Anfield Road. Ákveðið hefur verið að mótherji Liverpool í leiknum verði Everton og fer leikurinn fram 4. september. Allur ágóði af leiknum fer til góðra málefna í Liverpool borg í gegnum stofnunina "23 Foundation" sem Jamie stofnsetti fyrir nokkru. Jamie er mjög ánægður með að nú sé búið að ákveða leikdag og ekki síður að samningar hafi tekist við Everton um að spila gegn Liverpool.
"Þetta er búið að vera í undirbúningi í fjóra eða fimm mánuði. Ég hef orðið að hafa hljótt um þetta allt en ég er ánægður með að nú er hægt að byrja að segja almennilega frá þessum viðburði. Allt frá upphafi hefur verið frábært samstarf við Everton og David Moyes. Þegar ég byrjaði að hugsa um ágóðaleik fór ég að velta því fyrir mér hvaða lið kæmi til greina sem mótherji. Nokkur félög komu til álita en Everton var það lið sem ég hugsaði fyrst um."
"Ef ég hefði fengið lið frá útlöndum hefði þurft að borga því fyrir að koma og eins hefði bæst við ferðakostnaður. Ég vildi sleppa við slíkan kostnað því ég vil eiga sem mest eftir af peningum til að útdeila til Liverpool borgar og Merseyside. Allur ágóðinn af leiknum rennur til góðgerðarmála."
"Everton þarf bara að koma hérna yfir garðinn og menn þar á bæ vildu alls ekki taka neitt fyrir að spila leikinn. Allir vita að ég hélt með Everton þegar ég var strákur og mér fannst það vel viðeigandi að þau tvo lið sem hafa skipað stóran sess í lífi mínu leiddu saman hesta sína í þessum leik."
Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Liverpool og Everton geti strax farið að hlakka til þessa leiks. Jamie hefur tilkynnt að Liverpool liðið verði skipað leikmönnum sem hafa spilað með honum frá því hann hóf að leika fyrir félagið.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

