| Sf. Gutt

Fernando sá besti í september

Fernando Torres var valinn besti leikmaður Úrvalsdeildarinnar í september. Barclays, aðalstyrktaraðili deildarinnar, stendur fyrir þessu vali eftir hvern mánuð og útnefnir einn leikmann og svo þann framkvæmdastjóra sem best hefur gengið. Alex Ferguson, framkvæmdasjóri Manchester United, var talinn bestur meðal starfsbræðra sinna.  Fernando var sem fyrr segir valinn besti leikmaðurinn og er þetta í annað sinn sem hann hlýtur þessa viðurkenningu.

Fernando var líka valinn besti leikmaðurinn í kjöri stuðningsmanna liða í Úrvalsdeildinni. Það val fer fram á vefsíðunni givemefootball.com. Næstir í því vali voru þeir Wayne Rooney, Frank Lampard og Steven Gerrard. Valið var fyrir ágúst og september.

Fernando Torres skoraði fimm mörk í jafn mörgum leikjum í september. Við lok mánaðarins var "Strákurinn" markahæsti leikmaðurinn i Úrvalsdeildinni með átta mörk í sjö leikjum.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan