| Sf. Gutt
Á dögunum var lýst kjöri á "Íþróttapersónuleika Merseyside-svæðisins" fyrir árið 2008. Í raun er þetta mesta viðurkenning sem hægt er að fá í Liverpoolborg á sviði íþrótta. Valið er ekki bundið við afreksmenn í knattspyrnu þótt oftar en ekki verði þeir fyrir valinu. Það eru lesendur dagblaðsins Liverpool Echo sem kjósa ár hvert.
Þetta var í þrítugasta og sjöunda skipti sem kjörið fer fram. Howard Kendall, þá fyrirliði Everton, var sá fyrsti sem var kjörinn árið 1972. Árið eftir var Ian Callaghan fyrir valinu. Eftirtaldir leikmenn og framkvæmdastjórar Liverpool hafa verið valdir: Ian Callaghan, Kevin Keegan (tvisvar), Ray Clemence, Kenny Dalglish (tvisvar), Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen (1998), Steven Gerrard (2000), Gerard Houllier (2002), Jamie Carragher (2005) og Rafael Benítez (2006). Fernando Torres hefur nú bæst í hópinn. Mikel Arteta leikmaður Everton hlaut viðurkenninguna árið 2007. Fernando hafði þetta að segja þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
"Ég veit að Mikel fékk þessi verðlaun síðast því ég sá þennan stóra verðlaunagrip í stofunni hjá honum. Núna fer ég með verðlaunagripinn heim til mín og ég vona að ég eigi eftir að vinna hann aftur á komandi árum því hann hefur mikla þýðingu fyrir mig. Það eru mikil forréttindi fyrir mig að fá þessi verðlaun því ég veit hvaða þýðingu þau hafa fyrir fólkið í borginni og stuðningmennina."
"Mér finnst mikið til þess koma að sjá nafn mitt meðal þeirra sem hafa unnið verðlaunin áður því allir þekkja menn eins og þá Kenny Dalglish, Steven Gerrard og Jamie Carragher og vita hvaða þýðingu þeir hafa fyrir þetta félag og borgina. Þessir menn hafa allir unnið verðlaunin á undan mér. Mér finnst það mjög sérstakt að hafa unnið þau eftir að hafa verið aðeins í tvær leiktíðir hérna og mér finnst alveg magnað að vera svona ofarlega í huga fólksins hérna."
"Það er alltaf gaman að vinna verðlaunagripi en mikilvægustu verðlaunin fyrir knattspyrnumenn eru auðvitað þau sem sem lið vinna. Ég kom til Liverpool til að vinna titla og það er langur tími hjá Liverpool að hafa ekki unnið unnið neitt í tvær leiktíðir. Næsti titill þarf að vinnast sem allra fyrst því við viljum vinna titla fyrir okkur sjálfa, félagið og stuðningsmennina okkar."
TIL BAKA
Fernando Torres heiðraður
Á dögunum var lýst kjöri á "Íþróttapersónuleika Merseyside-svæðisins" fyrir árið 2008. Í raun er þetta mesta viðurkenning sem hægt er að fá í Liverpoolborg á sviði íþrótta. Valið er ekki bundið við afreksmenn í knattspyrnu þótt oftar en ekki verði þeir fyrir valinu. Það eru lesendur dagblaðsins Liverpool Echo sem kjósa ár hvert. Þetta var í þrítugasta og sjöunda skipti sem kjörið fer fram. Howard Kendall, þá fyrirliði Everton, var sá fyrsti sem var kjörinn árið 1972. Árið eftir var Ian Callaghan fyrir valinu. Eftirtaldir leikmenn og framkvæmdastjórar Liverpool hafa verið valdir: Ian Callaghan, Kevin Keegan (tvisvar), Ray Clemence, Kenny Dalglish (tvisvar), Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen (1998), Steven Gerrard (2000), Gerard Houllier (2002), Jamie Carragher (2005) og Rafael Benítez (2006). Fernando Torres hefur nú bæst í hópinn. Mikel Arteta leikmaður Everton hlaut viðurkenninguna árið 2007. Fernando hafði þetta að segja þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
"Ég veit að Mikel fékk þessi verðlaun síðast því ég sá þennan stóra verðlaunagrip í stofunni hjá honum. Núna fer ég með verðlaunagripinn heim til mín og ég vona að ég eigi eftir að vinna hann aftur á komandi árum því hann hefur mikla þýðingu fyrir mig. Það eru mikil forréttindi fyrir mig að fá þessi verðlaun því ég veit hvaða þýðingu þau hafa fyrir fólkið í borginni og stuðningmennina."
"Mér finnst mikið til þess koma að sjá nafn mitt meðal þeirra sem hafa unnið verðlaunin áður því allir þekkja menn eins og þá Kenny Dalglish, Steven Gerrard og Jamie Carragher og vita hvaða þýðingu þeir hafa fyrir þetta félag og borgina. Þessir menn hafa allir unnið verðlaunin á undan mér. Mér finnst það mjög sérstakt að hafa unnið þau eftir að hafa verið aðeins í tvær leiktíðir hérna og mér finnst alveg magnað að vera svona ofarlega í huga fólksins hérna."
"Það er alltaf gaman að vinna verðlaunagripi en mikilvægustu verðlaunin fyrir knattspyrnumenn eru auðvitað þau sem sem lið vinna. Ég kom til Liverpool til að vinna titla og það er langur tími hjá Liverpool að hafa ekki unnið unnið neitt í tvær leiktíðir. Næsti titill þarf að vinnast sem allra fyrst því við viljum vinna titla fyrir okkur sjálfa, félagið og stuðningsmennina okkar."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

