Diego Maradona á Melwood!
Nýr knattspyrnustjóri argentínska landsliðsins, goðsögnin Diego Armando Maradona, heimsótti Melwood æfingasvæði Liverpool í dag. Varð þar uppi fótur og fit enda ekki á hverjum degi sem goðsögn á borð við Diego er á ferðinni.
Goðsögnin ræddi þar við þá Rafa Benítez og Javier Mascherano. Þríeykið ræddi um hlutverk Mascherano með landsliði Argentínu en þeir gátu þó ekki byrjað umræðurnar fyrr en aðrir leikmenn félagsins voru búnir að heilsa uppá Maradona með handabandi.
Benítez sagði: ,,Það var erfitt fyrir mig að hefja fundinn með honum vegna þess að allir okkar leikmenn voru spenntir yfir því að hann væri á svæðinu. Tveir af okkar bestu leikmönnum fengu eiginhandaráritun hjá honum. Eftir það komu svo 15 leikmenn og sögðust vilja ná mynd af sér með honum. En hann var mjög góður, viðkunnalegur og þolinmóður við alla, þannig að þetta var skemmtilegt."
,,Gerrard, Carra, Keane og Alonso voru þarna en faðir Alonso spilaði einmitt með Maradona þegar hann var hjá Barcelona. Pepe Reina var þarna líka og einhverjir ungu leikmannana, Insua, Spearing, Flynn og fleiri."
Stjórinn bætti við: ,,Við áttum svo fund um framtíð Mascherano með landsliði hans og nokkrar hugmyndir tengdar því. Þetta var mjög jákvæður fundur."
Einn möguleikinn sem við ræddum var að Mascherano myndi taka við fyrirliðabandinu hjá argentínska landsliðinu. Maradona fór ekki leynt með það að hann vill gera Mascherano að fyrirliða og sá síðarnefndi fór ekki leynt með það að það væri heiður fyrir sig að leiða þjóð sína á knattspyrnuvellinum. Hinsvegar hefur ekkert verið staðfest í þeim efnum."
Og áfram hélt Benítez: ,,Þeir munu hittast aftur og þetta veltur allt á honum. Hann hefur gríðarlega góðan andlegan styrk, sterkan karakter og hann er góður atvinnumaður. Ef hann vill þá getur hann orðið frábær fyrirliði."
-
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn?

