| Sf. Gutt

David Moores talar út!

David Moores, fyrrum aðaleigandi Liverpool, er miður sín yfir því hvernig eigendur Liverpool hafa hagað málum sínum. Kaup þeirra George Gillett og Tom Hicks á Liverpool Football Club urðu fyrst möguleg þegar David ákvað að selja meirihlutaeign sína. David sér nú eftir öllu saman og biðlar um leið til þeirra George og Tom að að útkljá sín mál sem allra fyrst til heilla fyrir Liverpool F.C.!

“Þetta veldur manni hjartasári og ég á varla orð til að lýsa því tjóni sem þetta veldur félaginu um þessar mundir. Sem stuðningsmaður sem elskar þetta félag þá er það alveg óásættanlegt hvernig þessi atgangur fer fram fyrir opnum tjöldum. Svona á þetta ekki að vera hjá þessu félagi. Þetta er til skammar og svona má ekki vinna að málum. Ég hef aldrei vitað annað eins og ég er alveg miður mín."

David víkur svo að fréttum vikunnar þegar Tom Hicks heimtaði afsögn Rick Parry. Hann segir tímasetninguna ömurlega og félagið hafi þar með lent í sviðsljósinu fyrir atburði sem aldrei hefðu átt að gerast. David segir að hinn glæsilegi sigur Liverpool á Arsenal hefði átt að vera í sviðsljósinu.

David fjallar næst um þá George Gillett og Tom Hicks. Hann segist hafa kynnst George meira enda setti hann sig fyrst í samband við stjórn Liverpool um kaup á félaginu. David segir að George hafi komið vel fyrir. Hann segist hafa lítil kynni af Tom enda hafi hann komið seinna til sögunnar í kaupferlinu. Hann segist einfaldlega hafa treyst orðum George um að Tom væri góður kostur sem meðeigandi. Það skal rifjað upp að George gat ekki keypt Liverpool F.C. einn og hann fékk því Tom með sér til að gera kaupin möguleg. En hvernig stóð á því að David seldi þessum mönnum Liverpool F.C.?

"Ég gerði það bara í góðri trú. Ég trúði orðum þessara náunga. Ég trúði hverju orði sem þeir sögðu mér og þeir sögðu stuðningsmönnunum það sama í fjölmiðlum. Það getur svo hver og einn dæmt um það hvort þeir hafi staðið við loforð sín. Ég er undrandi á því sem gerst hefur því ég hafði þá trú, miðað við það sem þeir sögu mér og stuðningsmönnum í gegnum fjölmiðla, að þeir virtu arfleifð og gildi félagsins. Þeir sögðust ætla að reiða fram fjármagn til þess að reisa nýjan leikvang og þeir sögðust ekki ætla að skuldsetja félagið. Á þeim tíma töldum við allir að þetta væri gott samkomulag en raunin hefur orðið önnur. Mér finnst að menn hafi brugðist því trausti sem ég sýndi þeim. Það sem síðan hefur gerst staðfestir það."

Það var lengi búið að leita að kaupendum á Liverpool Football Club. Ýmsir voru tilkallaðir áður en af sölunni varð. En af hverju seldi David félagið sem honum þykir svo vænt um?

“Ef ég hefði haft næg fjárráð til að leiða félagið fram á veginn þá hefði ég gert það en ég gat það ekki. Ég átti ekki þá peninga sem þarf til að byggja nýjan leikvang og kaupa nýja leikmenn á hverju ári fyrir 30 til 40 milljónir sterlingspunda. Ég átti enga aðra kosti. Mikið vildi ég að ég vari enn við stjórn félagsins en það hefði þýtt að félagið hefði ekki gatað vaxið og dafnað. Þess vegna bið ég þessa tvo heiðursmenn að hugsa um hag félagsins en ekki eigið skinn. Stuðningsmennirnir, framkvæmdastjórinn og liðið verðskulda betra en þetta. Núna ættum að að einbeita okkur að framþróun, stöðugleika og mikilli vinnu sem vonandi gæti endað með frábæru kvöldi í Moskvu. En þegar ástandið er svona er félagið haft að háði og spotti."

Þetta vandræðaástand hjá eigendum Liverpool hefur ríkt frá því nóvember. Að minnsta kosti komst ástandið í fjölmiðla þá. Það hefur mikið gengið á á köflum en svo hafa öldurnar lægt inn á milli. Lausn er ekki í sjónmáli en hvað vill David Moores að gerist?

"Þetta ástand er ekki með nokkru móti ásættanlegt. Hvernig geta mennirnir talið sig varðveislumenn félagsins þegar þeir vinna ekki saman? Það þarf að finna laust svo fljótt sem auðið er. Eigendurnir tveir eru ekki sammála um hvernig beri að haga málum til framtíðar en samstaða er alveg nauðsynleg ef vel á að takast til. Þeir verða að hætta að hugsa um sjálfa sig og fara að hugsa um félagið, gildi þess og arfleifð. Þeir verða að gera það sem er best fyrir félagið og leysa málin sem allra fyrst. Það sem er að gerast núna gerir engum gott. Ég held að það sé hægt að bæta skaðann en þessir tveir heiðursmenn verða að ná samkomulagi um áframhaldið. Ég held að allir sjái það að ef þeir geta ekki fundið lausn þá verði þeir að víkja og hleypa öðrum að til að vinna verkin. Ég veit þó ekki hvað þessir heiðursmenn ætlast fyrir og ég veit ekki hvort þeir muni selja."

David Moores beindi að lokum orðum sínum til stuðningsmanna Liverpool.

"Það eina sem ég get lofað þeim er að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að aðstoða við að koma félaginu í gegnum þetta umrót þannig að hægt sé að fara að einbeita sér að því sem gerist innan vallar en ekki utan hans. Ég á þetta félag ekki lengur en ég mun gera allt sem ég get. Mig langar til að færa stuðningsmönnunum innilegar þakkir fyrir hinn mikla stuðning sem þeir hafa sýnt framkvæmdastjóranum og liðinu."

Þetta er brot úr viðtali sem birtist í staðarblaðinu Echo í dag. Viðtalið er það fyrsta sem David Moores gefur frá því hann seldi hlut sinn í Liverpool í febrúar 2007. David er enn í stjórn Liverpool sem heiðursforseti. Það verður fróðlegt að vita hvort þetta viðtal muni verða til þess að eigendur Liverpool F.C. sjái sig um hönd! Það væri óskandi!

 

 



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan