Liverpool vann Wrexham
Einn og sami leikmaðurinn skoraði öll mörk Liverpool í 3:2 sigri gegn Wrexham en annar leikmaður vakti athygli öðrum fremur fyrir að hafa lagt upp öll mörk Liverpool. Það vantaði marga af sterkustu mönnum liðsins og fengu fjölmargir að njóta sín því Rafa stillti upp nánast tveimur ólíkum liðum í sitt hvorum hálfleiknum.
Lið Liverpool í fyrri hálfleik:
David Martin
Steve Finnan
Gabriel Paletta
Jack Hobbs
Alvaro Arbeloa
Jermaine Pennant
Lee Peltier
Momo Sissoko
Adam Hammill
Jordy Brouwer
Besian Idrizaj
Austurríkismaðurinn Besian Idrizaj skoraði öll mörk Liverpool. Hann skoraði á 4., 16. og 26. mínútu þar af eru tvö skallamörk. Eftir að Jermaine Pennant fór útaf í hálfleik varð jafnræði með liðunum. Pennant tætti vörn Wrexham í sig og átti þátt í öllum mörkunum þremur hjá Liverpool.
Martin, Hammill og Idrizaj voru þeir einu úr liðinu sem hófu leikinn sem léku í seinni hálfleik. Daninn Martin Hansen, sem var fyrsti erlendi leikmaðurinn sem kom til akademíunnar síðasta sumar, kom inná í síðari hálfleik og byrjaði heldur illa því fyrsta snertingin hans fór beint á Eifion Williams framherja Wrexham sem minnkaði muninn í 3-1 á 63. mínútu. Hansen átti einnig sök á seinna marki Wrexham þegar hann fór út í fyrirgjöf sem hann sló út úr vítateignum beint á áðurnefndan Williams, á 89. mínútu, sem skoraði.
Ungverjarnir Andras Simon og Krisztian Nemeth léku sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í dag en létu lítið fyrir sér fara eins og aðrir leikmenn Liverpool í seinni hálfleik. Þeir komu inná fyrir Hammill og Idrizaj eftir rúman klukkutíma leik.
Lið Liverpool í seinni hálfleik:
David Martin (Martin Hansen 61' )
Stephen Darby
Miki Roque
Ronald Huth
Robbie Threlfall
Nabil El Zhar
Ryan Flynn
Jay Spearing
Adam Hammill (Andras Simon 61' )
Craig Lindfield
Besian Idrizaj (Krisztian Nemeth 61' )
Úrslit - 3:2 (3:0)
Mörk Wrexham: Eifion Williams (63. og 89. mínútu.)
Mörk Liverpool: Besian Idrizaj (4. 16. og 26. mínútu).
Áhorfendur á Racecourse Ground: 11.210.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Besian Idrizaj.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

