| Sf. Gutt

Fyrsti æfingaleikur

Liverpool leikur í dag sinn fyrsta æfingaleik fyrir leiktíðina. Líkt og undanfarin ár ríða leikmenn Liverpool á vaðið á Racecourse Ground í Wrexham. Líklegt er Liverpool tefli að mestu fram ungliðum sínum í þessum leik. Leikreyndustu menn liðsins eins og þeir Jamie Carragher, Steven Gerrard og Xabi Alonso hófu ekki að æfa fyrr en í gær þannig að þeir verða örugglega ekki með. Það verður hins vegar athyglisvert að sjá hvaða leikmenn spila með Liverpool og hvernig þeim vegnar sem alla jafna fá ekki mörg tækifæri með aðalliðinu. Rafael Benítez sagði að landsliðsmenn Liverpool muni hugsanlega koma við sögu gegn Crewe eftir viku. Hann sagði líka að ungu mennirnir hjá Liverpool væru æstir í að spila og hefðu látið mikið að sér kveða á æfingum þar sem af er æfingatímabilsins.

Leikurinn hefst klukkan tvö að íslenskum tíma.

Hér að neðan má rifja upp leiki Liverpool við Wrexham síðustu þrjú árin.

2004

2005

2006

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan