| AB

Myndir af endurfundum Ron Yeats og KR-inga

Ron Yeats, fyrrverandi fyrirliði Liverpool, hitti um helgina liðsmenn KR-inga sem voru fyrstu andstæðingar Liverpool í Evrópukeppni árið 1964. Yeats var eins og kunnugt er hér á landi í boði Liverpoolklúbbsins á Íslandi vegna árshátíðar klúbbsins. Þetta var svo sannarlega sögulegur viðburður þegar Yeats og KR-ingar endurnýjuðu kynnin sem hófust fyrir 43 árum síðan.

Hérna eru þeir forðum daga á Laugardagsvellinum. Þetta var sögulegt handtak enda fyrsti Evrópuleikur beggja félaga!

Skemmtilegt hvernig Ron Yeats er stafsett vitlaust.

 

Fyrirliðarnir Ellert B Schram og Ron Yeats virðast á þessari mynd eiga enn óuppgerðar sakir frá leikjunum forðum.

Hérna er svipmynd af leikskrá frá leiknum á Anfield sem er í eigu Gunnars Guðmannssonar (Nunna) sem var vinstri útherji.

Eins og sjá má hefur hann leiðrétt liðsuppstillinguna sem var gefin upp þarna.

 

Efri röð: Gunnar Felixson, Hörður Felixson, Þórður Jónsson, Sveinn Jónsson, Gunnar Guðmannsson og Þorgeir Guðmundsson.

Neðri röð: Ellert B Schram, Ron Yeats, Bjarni Felixson og Kristinn Jónsson.

Þess má geta að Gunnar Felixson skoraði eina mark KR gegn Liverpool í leikunum tveimur.

Hérna er Yeats ásamt Bjarna Fel að skoða leikskrána fyrir leik Liverpool og KR á Anfield.

Þess má geta að eintak af báðum leikskránum fyrir þessar viðureignir seljast á háu verði í dag hjá söfnurum.

Það var að sjálfsögðu stjanað við Ron þegar hann var hér á landi á laugardeginum og sunnudeginum. Hann fór á kostum á árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi á Players og er svo sannarlega glaðvær maður sem var einstaklega gaman að kynnast.

Hérna fylgja svo með nokkrar myndir í viðbót frá þessari ógleymanlegu helgi.

Yeats skoðar myndir frá 1964 sem eru í tíu ára afmælisbók Liverpoolklúbbsins á íslandi

Það var svo biðröð hjá strákunum að láta taka af sér mynd með Yeats og eftirlíkingu af Evrópubikarnum í fullri stærð.

Hér er Sigursteinn (Ssteinn) með Yeats eða Ron Evans eins og eina Leedsmanninum á svæðinu tókst að kalla hann.

Brosið var sjaldan langt undan enda var jafnan glatt á hjalla í kringum Ron.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan