Bara stuðningsmenn Liverpool!

Liverpool þarf á öllu sínu að halda annað kvöld þegar Galatasaray kemur í heimsókn. Í fyrsta sinn í sögunni verða bara stuðningsmenn Liverpool á leik á Anfield Road!
Vegna slæmrar hegðunar stuðningsmanna Galatasaray fyrr á leiktíðinni í Meistaradeildinni fékk félagið bann og sekt. Bannið felur í sér að stuðningsmönnum félagsins er óheimilt að fá miða á leikinn við Liverpool annað kvöld. Bannið kemur auðvitað ekki í veg fyrir að einhverjir stuðningsmenn Galatasary fari til Liverpool og einhverjir munu örugglega næla sér í miða. En í áhorfendastæðum gestanna verða engir gestir heldur bara stuðningsmenn Liverpool. Það hefur ekki gerst áður!
Liverpool þarf á öllu sínu að halda til að slá tyrkneska liðið úr keppni þeirra bestu í Evrópu. Það ætti að hjálpa til að hafa bara stuðningsmenn Liverpool í Musterinu!
-
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram! -
| Sf. Gutt
Illur grunur staðfestur -
| Sf. Gutt
Alexander Manninger látinn -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Anfield á eftir að hafa mikla þýðingu!


