Allt eða ekkert!

Það verður allt eða ekkert á Anfield Road í kvöld. Liverpool og Galatasaray leika upp á sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Galatasaray vann fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitunum 1:0 í síðustu viku. Það þýðir að Liverpool þarf að snúa dæminu við með því að vinna í kvöld. Nú eru útimörk ekki lengur í gildi þannig að allir sigrar Liverpool með tveimur mörkum duga. Svo dugar eins marks sigur alltaf til framlengingar og vítaspyrnukeppni ef með þarf.

Ljóst er að Liverpool þarf að spila einn sinn besta leik á leiktíðinni. Liðið hefur auðvitað tapað tvívegis á móti tyrkneska liðinu það sem af er leiktíðar. Segja má að það geti varla verið að Liverpool tapi þrísvar í röð fyrir liðinu. En til að breyta því þurfa leimennn Liverpool að sýna sitt rétta andlit. Með stuðningi troðfulls leikvangs af stuðningsmönnum Liverpool hlýtur það að takast. Allt er þegar þrennt er!
-
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim!

