Arne Slot er undir pressu!
.jpg)
Það er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að Arne Slot framkvæmdastjóri Liverpool er undir pressu! En hvað getur gerst?
Eitt mesta áfall í sögu Liverpool reið yfir félagið í byrjun júlí þegar Diogo Jota og André bróðir hans fórust í bílslysi. Það er ekki nokkur leið að setja sig inn í það hversu mikið áfall fráfall Diogo var og er fyrir leikmenn, starfsfólk og félagið Liverpool Football Club.
Leikmenn komu og fóru í sumar. Segja má að níu hafi farið og níu komið. Fimm af þeim sem fóru voru lykilmenn í Englandsmeistaraliðinu. Flestum leist vel á nýju mennina þegar þeir voru kynntir til leiks. En breytingin var mikil.
Þetta keppnistímabil, 2025/26, byrjaði stórvel. Reyndar tapaði Liverpool Skjaldarleiknum, við Crystal Palace, í vítaspyrnukeppni. En eftir það vann Liverpool sjö fyrstu leiki sína. Fimm í deildinni, einn Evrópuleik og einn í Deildarbikarnum.
Svo fór allt til verri vegar. Liverpool tapaði næstu fjórum leikjum í öllum keppnum. Þegar náðist að rétta skútuna hafði Liverpool tapað níu af 12 leikjum. Hroðalegt!
Eftir fylgdu 13 leikir án taps. Af þeim voru því miður of mörg jafntefli gegn liðum sem ríkjandi Englandsmeistarar eiga að vinna. En samt hafði margt færst í áttina.
Síðan hefur gengið upp og niður. Liverpool á í harðri baráttu um að ná sæti í Meistaradeildinni. Ekkert má út af bera í þeirri baráttu. Liðið er enn með í FA bikarnum og Meistaradeildinni. Ef allt gengur upp gætu tveir titlar unnist.
Margir stuðningsmenn Liverpool hafa, með réttu eða röngu, misst trúna á Arne Slot. Þeir telja að hann geti ekki komið liðinu aftur í gang. Liðinu vanti stöðugleika, kraft, leiðaðferðir séu ekki nógu vel útfærðar og leikur liðsins leiðinlegur. Á móti kemur að meiðsli hafa verið mikil og nýju mennirnir voru lengi að ná saman. Áfallið vegna dauða Diogo Jota hefur haft gríðarleg og ómæld áhrif.
En hvað getur gerst? Arne gæti verið látinn fara fyrirvaralaust fyrir lok leiktíðar. Líkur á því eru svo til engar. Arne gæti verið látinn fara eftir leiktíðina. Líkur á því eru vissulega einhverjar. Arne gæti verið treyst til að halda áfram með liðið. Margir traustir fjölmiðlamenn telja næsta víst að honum verði treyst til að halda áfram með liðið.
Allt kemur í ljós með tímanum. En það verður ekki litið framhjá því að Arne Slot er undir mikilli pressu.
-
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool! -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp lítur við heima! -
| Sf. Gutt
Liverpool mætir Evrópumeisturunum! -
| Sf. Gutt
Allt eða ekkert! -
| Sf. Gutt
Bara stuðningsmenn Liverpool!


