Jürgen Klopp lítur við heima!

Jürgen Klopp lítur við heima á næstu dögum. Á laugardaginn mæta goðsagnir Liverpool Borussia Dortmund á Anfield Road og verður Jürgen ásamt Kenny Dalglish við stjórn liðs Liverpool. Ian Rush og John Aldridge verða þeim til halds og trausts.

Líkt og síðustu ár spila goðsagnir Liverpool ágóðaleik þegar fyrsta landsleikjahlé ársins stendur yfir. Nú kemur Borussia Dortmund í heimsókn og að sjálfsögðu var Jürgen Klopp boðið að stjórna Liverpool gegn þýska liðinu sem Jürgen stýrði áður en hann fór til Englands.
LFC Foundation er góðgerðarfélag Liverpool Football Club. Eins fær Forever Reds huta af ógóðanum. Forever Reds er félag fyrrum leikmanna Liverpool. Á síðasta keppnistímabili nutu 145.000 manns góðs af vinnu LFC Foundation. Jürgen Klopp er verndari LFC Foundation.
Þetta er liðshópur Liverpool. Dudek, Wright, Skrtel, Hyypia, Klavan, Aurelio, Spearing, Biscan, Thiago, Gerrard, Babel, Reina, Westerveld, Vignal, Kelly, Benayoun, Schillgard, Smicer, Riera, Sinama-Pongolle, Pennant, Gonzalez, Crouch, Dowie og Kuyt.
-
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield!

