| Sf. Gutt

Óvíst með Ibrahima Konaté

Framtíð Ibrahima Konaté hjá Liverpool er ennþá í óvissu. Samkvæmt ýmsum fjölmiðlum hefur hann gert kaupkröfur sem forráðamenn Liverpool eru tregir til að ganga að.

Samningur franska miðvarðarins rennur út næsta sumar. Hann getur því farið að semja við önnur knattspyrnufélög á nýju ári. Talið var að Real Madrid væri að skipuleggja álíka vegferð með honum og félagið gerði með Trent Alexander-Arnold. Ibrahima hefur líka verið orðaður við Paris Saint Germain.

Í haust var mikið fjallað um málið og þá var talið svo til útilokað að Frakkinn myndi gera nýjan samning. Nú eru kannski taldar einhverjar líkur en samt er svo sem lítið vitað um stöðuna. 

Fram eftir allri leiktíð var Ibrahima mjög ólíkur sjálfum sér. Spilaði illa og var mjög óöruggur. Í janúar féll faðir hans frá. Ibrahima fór að sjálfsögðu í frí. Svo bar við að hann hefur spilað mun betur eftir að hann kom til baka úr fríinu og í raun verið sjálfum sér líkur á nýjan leik. Hugsanlega hefur heilsufar föður hans í haust verið þannig að Ibrahima átti erfitt með að einbeita sér að knattspyrnunni. Það má ekki gleyma því að knattspyrnumenn eru bara venjulegt fólk.  

Ibrahima kom til Liverpool 2021. Frakkinn lék áður með Sochaux og Red Bull Leipzig. Hann er búinn að spila 173 leiki, skora sjö mörk og leggja upp fjögur.

Við sjáum hverju fram vindur.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan