| Sf. Gutt

Í hnotskurn

Algjört met! Mörkunum rigndi í Birmingham og Liverpool vann stærsta útisigur sinn í F.A. bikarsögu félagsins sem nú nær yfir á þriðju öld! Undanúrslitin bíða! Þetta er leikur Liverpool og Birmingham City í hnotskurn.

 Liverpool hefur unnið F.A. bikarinn sex sinnum 1965, 1974, 1986, 1989, 1992 og 2001.

- Liverpool vann sinn stærsta útisigur í F.A. bikarnum frá því liðið lék fyrst í keppninni á leiktíðinni 1892/93.

- Þetta var stæsti útisigur Liverpool í F.A. bikarnum frá því liðið lagði Yeovil & Petters United að velli 6:2 árið 1935.

- Þetta var stærsti útisigur í átta liða úrslitum þessarar keppni frá því Blackburn Rovers vann Bootle 7:0 á leiktíðinni 1889/90. Bootle var lið frá Liverpool.

- Stærsti sigur Liverpool í F.A. bikarkeppninni kom á hinn bóginn þann 9. janúar 1990. Liverpool vann þá Swansea City 8:0 á Anfield Road í aukaleik í 3. umferð keppninnar. Ian Rush skoraði þrennu, John Barnes skoraði tvívegis og þeir Steve Nicol, Ronnie Whelan og Peter Beardsley skoruðu eitt mark hver.

- Stærsti sigur félagsins ef allar keppnir eru taldar kom í Evrópukeppni bikarhafa 17. september 1974 þegar Liverpool rústaði norska liðið Stromgodset 11:0 á Anfield Road. Þeir Phil Thompson 2, Phil Boersma 2, Tommy Smith, Peter Cormack, Emlyn Hughes, Steve Heighway, Ray Kennedy, Ian Callaghan og Alec Lindsay, víti sáu um mörkin í þessum stærsta sigri félagsins.

- Sjö marka sýningin í Birmingham hjó nærri stærsta útisigri Liverpool í sögunni. Sá stærsti vannst á Stoke City í Deildarbikarnum í nóvember 2000. Liverpool vann þann leik 8:0.

- Það var merkilegt að miðvörðurinn Sami Hyypia skoraði í báðum þessum metsigrum.

- Markið hans Sami Hyypia var eitt hið sneggsta sem Liverpool hefur skorað í F.A. bikarnum. Markið mun vera tímasett á 54. sekúndu leiksins.

- Liverpool hefur áður skorað nokkur mörk í F.A. bikarnum á fyrstu mínútu en þau eru ekki öll tímasett upp á sekúndu. 

- Það hefur líka sjaldan gerst að Liverpool hafi verið komið í 2:0 eftir aðeins fimm mínútna leik.

- Peter Crouch hefur nú skorað flest mörk leikmanna LIverpool í keppninni eða þrjú talsins.

- John Arne Riise skoraði sitt annað mark í keppninni. Hann skoraði líka gegn Portsmouth þegar Liverpool vann 2:1 á Fratton Park í 4. umferðinni.

- Markið hans John Arne var með þeim fallegri og það stóðu meira að segja nokkrir stuðningsmenn Birmingham á fætur og klöppuðu fyrir markinu!

- Mohamed Sissoko varð fyrstur leikmanna Liverpool til að leika með gleraugu. Malímaðurinn sneri aftur til leiks eftir augnmeiðslin sem hann varð fyrir í Lissabon.

- Mohamed tók gleraugun af sér á tímabili því það vildi safnast móða á þau.

- Liverpool hafði ekki unnið Birmingham City fyrr á valdatíð Rafael Benítez. Þetta var fimmti leikur liðanna frá því Spánverjinn tók við völdum hjá Liverpool. 

- Sigurinn tryggði Liverpool sæti í undanúrslitum F.A. bikarsins í tuttugasta og annað sinn í sögu félagsins.

Birmingham City: Maik Taylor, Melchiot, Cunningham, Martin Taylor (Tebily 45. mín.), Painter, Pennant, Johnson (Bruce 75. mín.), Clemence, Clapham, Forssell og Dunn (Kilkenny 71. mín.). Ónotaðir varamenn: Vaesen og Lazaridis.

Gul spjöld: Stephen Clemence, Damien Johnson og Alex Bruce.

Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Hyypia, Traore (Kewell 22. mín.), Alonso, Gerrard (Cissé 71. mín.), Sissoko, Riise, Crouch (Morientes 56. mín.) og Garcia. Ónotaðir varamenn: Dudek og Kromkamp.

Mörk Liverpool: Sami Hyypia (1. mín.), Peter Crouch (5. og 38. mín.), Fernando Morientes (59. mín.), John Arne Riise (70. mín.), Olivier Tebily sm. ( 77. mín.) og Djibril Cissé (89. mín.)

Áhorfendur á St Andrews: 27.378.

Maður leiksins: Steven Gerrard átti stórfenglegan leik. Hann var allt í öllu þar til hann yfirgaf leikvöllinn. Hann átti til dæmis þátt í fimm fyrstu mörkum Liverpool. Það er að segja öllum þeim mörkum sem Liverpool skoraði á meðan Steven var inni á vellinum.

Jákvætt :-) Liverpool fór áfram í F.A. bikarnum. Liverpool hefur svo sem leikið betur á leiktíðinni en í þessum leik gekk gersamlega allt upp. Næstum allar marktilraunir Liverpool höfnuðu í markinu! Þarna sést hvernig getur gengið þegar heilladísirnar eru með. Steven Gerrard var stórfenglegur í leiknum og lagði upp hvert markið á fætur öðru. Það var frábært að sjá Mohamed Sissoko koma til leiks á nýjan leik. Það var einfaldlega frábært að sjá Liverpool skora hvert markið á fætur öðru. Kvöldin gerast ekki betri mikið betri en þetta.

Neikvætt :-(  Hvað ætti það að vera! Ég bara spyr?

Umsögn Liverpool.is um leikinn: Evrópumeistararnir hefðu ekki getað byrjað leikinn betur. Steven Gerrard sendi aukaspyrnu inn að markinu. Mohamed Sissoko, sem lék sinn fyrsta leik eftir augnmeiðslin slæmu, skallaði boltann til Sami Hyppia sem skallaði í markið. Aðeins 54 sekúndur voru liðnar þegar boltinn lá í markinu! Fjórum mínútum seinna lá boltinn aftur í marki heimamanna. Steven Gerrard lék upp hægri kantinn og gaf góða sendingu fyrir markið. Peter Crouch komst fyrstur að boltanum og skallaði í mark fyrir miðju markinu. Maik Taylor, landsliðsmarkvörður Norður Íra, hafði hendur á boltanum en hann fór samt í markið. Nú var ljóst hvert stefndi. Engu skipti þótt Djimi Traore hefði þurft að fara af velli vegna meiðsla. Harry Kewell kom inn fyrir hann og fór út á vinstri kantinn. John Arne Riise, sem lék sinn fyrsta leik eftir meiðsli, fór aftur í bakvarðarstöðuna. Liverpool hafði öll ráð heimamanna í hendi sér og næsta mark lá í loftinu. Það kom þó ekki fyrr en á 38. mínútu. Steven Gerrard sendi boltann á Luis Garcia sem lék upp að vítateignum. Hann var þar aðþrengdur sen náði að koma boltann inn á vítateiginn þangað sem Peter var kominn og sendi hann í markið af öryggi. Miðað var styrk varnar Liverpool má segja að úrslitin hafi hér verið ráðin. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleik af miklum krafti en hafi einhver minnsti efi um lyktir leiksins ríkt einhversstaðar þá gufaði hann upp á 59. mínútu. Liverpool sótti þá upp hægri kantinn. Luis Garcia sýndi frábæra gabbhreyfingu með því að hlaupa yfir boltann sem barst til Steven Gerrard. Fyrirliðinn lék inn á vítateiginn þaðan sem hann sendi fyrir markið á Fernando Morientes sem skoraði með því að renna boltanum óvaldaður í markið. Spánverjinn var aðeins búinn að vera þrjár mínútur inni á vellinum eftir að hafa leyst Peter Crouch af hólmi. Hættulegasta færi heimamann kom áður en Liverpool bætti við næsta marki. Mikael Forssell náði þá föstu skoti úr teignum sem Jose Reina sló frá með annarri hendi. Á 70. mínútu kom fallegasta mark leiksins. Enn kom Steven Gerrard við sögu. Hann renndi boltanum á Norðmanninn John Arne Riise sem negldi þá boltann upp undir þverslána með bylmingsskoti utan vítateigs. Frábært skot og stórglæsilegt mark. Yfirburðir Liverpool voru nú með hreinum ólíkindum og næsta mark lá í loftinu. Það kom á 77. mínútu. Harry Kewell sendi boltann fyrir frá vinstri. Á markteignum rendi Olivier Tebily sér fram og spyrnti boltanum í eigið mark. Stuðningsmenn heimamanna streymdu heim en aðdáendur Liverpool sungu linnulaust sínum mönnum til dýrðar. Ekki minnkuðu veisluhöld þeirra á 88. mínútu. Djibril Cissé fékk þá boltann úti á hægri vængnum. Hann lék inn í vítateignn og þrumaði að marki. Boltinn rakst lítilsháttar í varnarmann og fór af honum undir Maik Taylor og í markið. Sjöunda marki Liverpol var fagnað innilega, eins og hinum sex, af stuðningsmönnum Liverpool sem nú réðu sér ekki fyrir kæti. Lokaflaut dómarans staðfesti stærsta útisigur Liverpool í sögu F.A. bikarkeppninnar! Í sömu andrá var sæti Liverpool í undanúrslitum keppninnar í höfn. Vonandi eru mörkin sjö vísbending um að Liverpool vinni F.A. bikarinn í sjöunda sinn í Cardiff í vor!!!!!!!

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan