| Sf. Gutt

Lygileg dómgæsla!

Það sem af er leiktíðar hefur Liverpool fengið vanhæfa dómgæslu á sig í þremur leikjum á Anfield Road. Liverpool fékk eitt stig af níu úr þessum leikjum.

Í fyrsta heimaleiknum á leiktíðinni á móti Nottingham Forest fékk Forest víti sem var rangur dómur. Var fannst allt í lagi og lét dóminn standa. Dómgæslunefndin viðurkenndi mistök eftir leik. Leiknum lauk með jafntefli.

Gegn Manchester City var leikmaður Liverpool rekinn af velli með tvö gul spjöld fyrir litlar sakir. Hugsanlega var rétt að gefa gult spjald í öðru tilvikinu en alls ekki hinu. Sparkspekingar voru á því að rangt hefði verið dæmt og algerlega í ósamræmi við hvernig dómarinn hafði dæmt í svipuðum atvikum áður í leiknum. Jafnt var þegar Liverpool missti manninn út af. Leikurinn tapaðist.

Í leiknum við Arsenal var Liverpool marki undir þegar brotið var á Alexander Isak inni í vítateig með því að toga í keppnistreyju hans. Var gerði ekkert þó um augljósa vítaspyrnu væri að ræða. Mál allra sparkspekinga var að um óboðlega dómgæslu hafi verið að ræða. Dómanefndin viðurkenndi seint og um síðir mistök. Leikurinn tapaðist. 

Vissulega gerðu leikmenn Liverpool sín mistök í þessum leikjum sem kostuðu sitt. En eftir stendur að dómgæsla, sem var fjarri því að vera í lagi, hafði mikið að segja um úrslit í þessum þremur leikjum.

Í síðasta deildarleik fékk Crystal Palace vítaspyrnu, í viðbótartíma, sem var illskiljanleg og varla hægt að rökstyðja að rétt væri dæmt. Palace skoraði úr víti en það kom ekki að sök því Liverpool vann leikinn.

Í leikjunum á móti Forest, Arsenal og Palace hefðu sjónvarpsdómarar auðveldlega getað skorist í leikinn og leiðbeint dómurum. Gegn City gat sjónvarpsdómgæslan ekkert gert þar sem um tvö gul spjöld var að ræða. En dómgæslan í þeim leik var samt ekki í lagi!

Sjónvarpsdómgæslan átti að bæta dómsæslu. Vissulega hafa dómar verið leiðréttir, í gegnum þetta kerfi, en mistökin, sem hafa verið gerði eru engu að síður óboðleg!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan