| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Hér eru helstu fréttir í kjölfar þessarar löngu landsleikjahrotu. Flestir leikirnir voru í Þjóðadeildinni. Riðlakeppni hennar er nú tl reynslu leikin í tveimur hléum í stað þriggja.

Cody Gakpo, Ryan Gravenberch og Virgil van Dijk léku allir með Hollendingum á heimavelli á móti Þýskalandi. Þetta var fyrsti landsleikur Þjóðverja undir stjórn Jürgen Klopp. Allt stefndi í 1:2 sigur Þjóðverja þar til Cody jafnaði í viðbótartíma.

Virgil skoraði í 2:2 jafntefli við Grikkja á útivelli. Grikkjar komust í 2:0. Kostas Tsimikas spilaði með gríska landsliðinu. Virgil lék svo sinn 100. landsleik í hrotunni þegar Holland vann Serbíu 2:1.

Alexander Isak skoraði í 2:1 sigri Svía á Rúmenum.

 

Bradley Barcola og Jérémy Jacquet voru í liðshópi Frakklands í hrotunni. Jérémy lék sinn fyrsta landsleik þegar Frakkar unnu Belga 0:1 í Brussel. Hann fékk mikið hrós frá nýja landsliðsþjálfaranum Zinedine Zidane.

Florian Wirtz skoraði seinna mark Þjóðverja í 2:0 sigri á Serbíu. Hann var fyrirliði Þýskalands í fyrsta sinn. 

Dominik Szoboszlai og Milos Kerkez voru í liðshópi Ungverja. Milos varð svo frægur að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Hann skoraði eina mark leiksins þegar Ungverjar unnu Georgíu. Hann skallaði í mark framhjá liðsfélaga sínum Giorgi Mamardashvili.

Giorgi gerði stórvel í leik gegn Norður Írum í Belfast. Hann varði vítaspyrnu frá Isaac Price undir lok leiksins. Leiknum lauk án marka. 

Kieran Morrison var með Norður Írum. Hann lagði upp eitt mark í 3:0 sigri á Úkraínu. Kieran er lánsmaður hjá Sheffield Wednesday.

Victor Munoz var í liðshópi heimsmeistara Spánar og kom við sögu í einhverjum leikjum.

Lewis Koumas kom við sögu hjá Wales. Hann hefur verið fastamaður í liðshópnum síðustu mánuði. 

Ungliðinn Rio Ngumoha var í liðshópi Englands. Hann kom inn sem varmaður í leikjum Englands.

Alexis Mac Allister spilaði með Argentínumönnum í hrotunni. Lionel Messi lauk landsliðsferli sínum í síðasta leiknum. Argentínumenn unnu Benín 3:0. Lionel lagði upp mörk fyrir Nicolas Otamendi og Nico Paz áður en hann skoraði sjálfur úr vítaspyrnu. 

Kyle Kelly er lykilmaður hjá Sankti Kitts og Nevis. Hann skoraði mark í 3:3 jafntefli við Kúbu. Kyle er í láni hjá Forest Green Rovers. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan