Miðasala á Liverpool leik
Liverpoolklúbburinn á Íslandi er með til sölu miða á þrjá leiki á seinni hluta tímabilsins 26/27:
- Liverpool – Coventry City sem er áætlað að fari fram 02. janúar kl.15:00
- Liverpool – Crystal Palace sem er áætlað að fari fram 16. janúar kl.15:00
- Liverpool – Hull City sem er áætlað að fari fram 20. febrúar kl.15:00
Opnað hefur verið fyrir skráningu í pott.
ATH. Sala fer eingöngu fram í gegnum Abler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allir sig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið, þann 06.11.2026 munum við taka öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama borð.
Útdrátturinn verður í beinni útsendingu mánudaginn 09.11.2026 kl. 18 á Facebook síðu klúbbsins og á instagram síðu klúbbsins #lfcice. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika að kaupa miða.
Skv. nýjum reglum Liverpool FC þurfa allir miðahafar einnig að vera meðlimir í klúbbnum úti til að geta fengið miða afhentan. Hægt er að skrá sig í klúbbinn úti hérna https://www.liverpoolfc.com/allred. Það þarf að vera með All Red Full, All Red Light eða All Red Junior Official Membership til að geta fengið miða.
Til að kaupa miða þarf að fara inná https://abler.io/shop/liverpoolklubburinn eða Abler appið og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið.
Í boði er að kaupa 2 miða á mann. ATH. Við vitum ekki hvar á vellinum miðarnir eru sem klúbburinn fær úthlutað fyrr en þeim er úthlutað 1-2 vikum fyrir leik. Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær fólk miða saman.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]
-
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt!

